Nýja Árið og Gamla
Nú þegar árið er liðið og nýtt er hafið er um að gera að líta yfir farinn veg og íhuga hvað gott átti sér stað og hvað hefði betur mátt fara.
Í ársbyrjun 2003 tókum við Lázaro þá afdrifaríku ákvörðun að fara til Perú. Ég skipulagði fjármálin hjá okkur og keypti miðana í janúar þótt við færum ekki fyrr en í ágúst. Við tókum sameiginlega ákvörðun um að gera börnunum hans Lázaro ljóst að þau ættu alltaf öruggan samastað hjá okkur á Íslandi hvenær sem þau vildu.
Ég fann líka leigjanda í íbúðina hans Lázaro sem var einstæð móðir með 2 börn. Hún var í 6 mánuði og þá komu eyjapeyjarnir sem einmitt fara úr íbúðinni núna í lok janúar 2004. Nú er aftur hafin leigjandaleit og ég orðin töluvert þreytt á að standa í þessu íbúðarbrasi.
Í janúar hófst mín 4. önn við enskunám í Háskólanum og var það önn mikillar skammar þar sem ég fékk lægstu einkunn sem ég hef nokkurn tíma fengið á mínum háskólaferli. Það var 8 í félagsmálvísindum og ég er enn þá ósátt við þessa niðurstöðu þar sem ég lagði sérstaka vinnu í ritgerðina og það eina sem sett var útá hana var að hún væri of löng! Það var engin einasta önnur athugasemd gerð. Það er fullmikið að lækka fólk um 2 heila fyrir að skrifa of mikið!
Í febrúar fór mamma í 3.skurðaðgerðina síðan hún lenti í vinnuslysi 2002 hjá Íslandspósti og ég var viðstödd eins og áður inni á skurðstofu. Þessi aðgerð heppnaðist ágætlega en við tókum strembnar vikur í gifsi á eftir.
Sumarið fór í að undirbúa ferðina og leggja drög að BA-ritgerðinni minni sem ég ákvað að skila fyrir jól en ekki á síðustu önninni fyrir útskrift einfaldlega vegna þess að það var ekki nægilegt úrval af kúrsum fyrir mig á haustönninni til að ég gæti fyllt upp í þann einingafjölda sem ég þurfti.
Í ágúst var haldið af stað til Perú og nánari lýsingar á ferðinni er að finna í blogginu mínu frá þeim tíma. Það stóð uppúr að hafa loksins hitt stjúpbörnin mína og vera tekið jafnvel af þeim eins og raun bar vitni. Einnig var frábært að hitta aldraða tengdamóður mína og hún gaf mér fyrirfram brúðargjöf sem var bollasett. Það segir sig síðan sjálft að það að einfaldlega kynnast menningu Lázaro var ómetanlegt og gaf mér ákveðna innsýn í hans persónuleika sem ég hafði ekki áður. Pottþétt gott fyrir sambandið.
Eftir mánaðardvöl í Perú með matareitrun og moskítóbit var haldið heim aftur og erfiðasta önn sem ég hef farið í gegnum hóf göngu sína. Ég vann 50% starf á 118, skrifaði BA-ritgerðina mína, var í 2 kúrsum, þýddi 3 langar, trúarlegar ræður fyrir Moon-söfnuðinn eftir séra Sun Myuong Moon sjálfan, þýddi 250 bls. bók frá ensku yfir á íslensku hverrar útgáfu var síðan frestað, reyndi að styðja við bakið á móður minni sem fór í október í 4. skurðaðgerðina á 1 og hálfu ári (og hef ekki veitt henni þann stuðning sem hún hefði þurft). Ég hjálpaði líka vinkonu minni henni Auri sem var í fjarnámi austur á landi í vetur og sendi henni allar glósur, bækur og annað sem hún þurfti fyrir námið.
Ég fann nýja vinnu handa Lázaro en hann var í ágúst 2003 búinn að vera 2 ár í Kornax og það var að ganga af honum dauðum vegna líkamlegs álags. Hann vinnur núna á Hrafnistu í Reykjavík sem er í 7 mínútna gangfæri frá Kambsveginum þar sem við búum. Auk þess eru launin betri og vinnan miklu léttari.
Á þessari sömu önn, nánar tiltekið í byrjun október fengum við símhringingu frá Perú þar sem móðir barnanna væri búin að ákveða að börnin (stelpur Kelly 8 og Rosario 11 ára og strákur José 12 ára) kæmu til Íslands þar sem hún væri búin að fá nóg. Síðan þá hef ég verið beintengd við útlendingastofnun, utanríkisráðuneytið, ræðismann Íslands í Perú, sendiráð Perú í Svíþjóð, Icelandair og Langholtsskóla til þess að undirbúa komu barnanna. Einnig höfum við þurft að endurskipuleggja mína 62 fermetra íbúð til þess að við komumst öll fyrir en mamma hefur eftirlátið okkur litla geymslu með glugga og ofni sem verður gerð að notalegu herbergi fyrir José. Stelpurnar fá svefnherbergið okkar og við gerum okkur hreiður í einu horni í stofunni sem er mjög stór. Vonandi getum við í framtíðinni stækkað við okkur í húsnæðismálunum. Vonandi koma börnin líka örugglega því að ég held ég gæti ekki tetkð vonbrigðunum ef mamma þeirra hætti við á síðustu stundu eftir allt sem ég og Lazaro höfum lagt í sölurnar (fjárhagslega og tilfinningalega) til að gera þetta að veruleika.
Ég skilaði BA-ritgerðinni minni á réttum tíma og enn eitt árið leið án þess að ég gæti séð frænkur mínar í Tyrklandi, Dagbjörtu og Rúnu, en ég hef verið með tvær sprungur í hjartanu síðan að þeim var rænt af föður sínum og fyrrverandi frænda, Halim Al.
Ég og Lázaro áttum í desember 1 árs trúlofunarafmæli og 2 ár síðan við hittumst fyrst. Við ætluðum jafnvel að gifta okkur í desember en sökum mikilla anna þá var því frestað þar til að börnin koma til okkar svo að þau geti líka tekið þátt í því með okkur.
Í heildina litið þá hefur þetta ár verið afskaplega viðburðarmikið en helstu annmarkar hafa helst verið vanræksla á félagslífi og vinum og ég stefni að betrumbótum í þeim málum. Einnig stefni ég á það að verða betri manneskja að öllu leyti en ég var á liðnu ári. Ég vil forðast betur að slúðra (tala illa um aðra), gefa fólki tækifæri áður en ég dæmi það, verða betri og þroskaðri dóttir, umhyggjusöm (eigin)kona og ég vona að ég fái tækifæri til þess að verða góð (stjúp)mamma.
Þann 7. janúar 2004 verða liðin 10 ár síðan pabbi dó og 7 ár síðan (móður)amma mín dó. Þá gefst tími til þess að íhuga liðin ár lengra aftur í tímann og hvort maður hafi hagað lífi sínu þannig að þau yrðu stolt af manni. Mér finnst ég hafa gert svo mörg mistök og staðið mig svo vel líka að það er erfitt að segja til um árangurinn.
Nínos hefur tjáð sig og það verða engin áramótaheit núna, bara vonast til að verða betri.
Ég á ekki til eitt aukatekið orð!!!!
Hvað er í gangi með þessar kannanir? Ég er alls ekki sátt við þessar niðurstöður!

Marilyn Manson is your soulmate. Lucky you...
finally someone you can share make-up tips
with, only thing is he might ask you to share
your underwear also! Be prepared to say goodbye
to sunshine and start to look for a coffin!!
Who is your Prince Charming? brought to you by Quizilla