Eigi Skalt Þú Stela
Já, börnin góð. Crime doesn't pay. Ég er búin að læra það the hard way. Ég var að vinna í gær hérna á 118 og ein ágætis samstarfskona mín kom með risastóra ávaxtakörfu í vinnuna, fulla af allskyns framandi ávöxtum sem ég hafði aldrei séð áður. Hún sagði okkur endilega að fá okkur ávexti því hún ætlaði sér ekki að taka körfuna með sér heim. Ég náttúrulega fylltist græðgi, sérstaklega fyrir hönd Lázaro sem saknar sárlega alls úrvalsins af ávöxtum sem er í Perú þaðan sem hann kemur. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og beið þar til að skyggja tók úti og starfsfólki í salnum fækkaði. Eftir því sem tíminn leið varð djöfulleg áætlun mín og aðferðafræði alltaf skýrari í glæpsamlegum kollinum á mér og þegar klukkan var ellefu lét ég til skarar skríða. Ég fór inní skápinn minn og fann þar gamlan bréfpoka sem ég læddist með inn í eldhús. Ég leit flóttalega í kringum mig og fann svitann spretta fram á enninu af ótta við að einhver af næturvaktinni stæði mig að verki. Ég týndi varlega vel valda ávexti úr körfunni og réttlæti aðgerðir mínar með því að hugsa sem svo að það hefði hvort eð er enginn fengið sér neitt úr þessar körfu svo að það væri allt í lagi þó ég tæki úr henni á við 5 manns. Ég tók alla flottustu ávextina og skildi eftir þessa gömlu, leiðinlegu eins og appelsínur og epli. Til málamyndanna lét ég eftir liggja kannski 2-3 skrýtna ávexti svo að þetta yrði ekki eins áberandi. Allt þetta glæpaferli má einnig réttlæta á þann veg að ég gerði þetta fyrir ástina mína, hann Lázaro. Þetta var í raun ástríðuglæpur þar sem tilgangur minn var að tæla manninn með því að leggjast nakin upp í rúm og dreifa ávöxtunum yfir mig alla á lostafenginn hátt.
Þegar ég fer út í bíl og þessar hugsanir eru að brjótast um í mér, finn ég allt í einu fyrir sting í einum putta. Ég fer eitthvað að nudda hann og þá finn ég annan sting á öðrum stað og svo einn annan og áður en ég veit af er ég bara með stingi útum allt á báðum höndum eins og þúsund ósýnilegar flísar séu stungnar á kaf í holdið á mér. Ég keyri heim næstum því grenjandi og grýti ávöxtunum á borðstofuborðið. Lazaro fékk áfall og hélt að ég hefði verið vísvitandi að reyna að grýta hann með þessum, helvítis forboðnu ávöxtum. Ekki alveg eins rómantísk heimkoma og ég hafði planað. Ég segi honum hvað mér er illt og þegar ég skoða fingurna á mér í ljósi sé ég pínulitlar nálar út um allt í þeim, svo litlar að þær sáust varla. Lazaro finnst þetta mjög skrýtið og dregur upp ávextina einn af öðrum þar til hann fann sökudólginn, pínulítinn og sakleysislegan ávöxt sem maður á víst ekki að handfjalla án hanska vegna þess að hann er allur í nálum eins og kaktus. Ég eyddi lunganum úr nóttinni í að reyna að plokka þetta ógeð úr puttunum á mér. Því segi ég:
Crime Doesn't Pay, Not Even in the Name of Love
BA-Helvíti að Baki
Vonandi hafa allir átt gleðileg jól. Ég átti þau svo sannarlega og það var ekki síst því að þakka að ég er búin að SKILA BA-RITGERÐINNI!!! Ég lét prenta hana og binda inn í 4 eintökum eins og reglurnar segja um, á mánudaginn 22.desember og skilaði henni sama dag þannig að öll mín plön varðandi þetta verkefni hafa gengið upp. Ég get ekki lýst léttinum sem ég fann fyrir þegar þessu var lokið. Samt upplifði ég svolítið blendnar tilfinningar vegna þess að ég var ekki fyrr búin að láta binda "The Masterpiece" inn áður en ég varð að láta hana frá mér þannig að ég gat ekkert dáðst að henni eins og mig langaði til (ég veit, hljómar sjúklega, en ég er búin að vera að vinna í þessu síðan í fokking sumar þannig að það var soldið erfitt að láta my baby frá sér sí svona). Svo upplifði ég líka svona óhugnanlega tilfinningu þess að ég hefði klikkað á einhverju mikilvægu eða að það væru einhverjar glataðar villur í ritgerðinni sem hefðu farið framhjá mér. Það var nefnilega þannig að í hvert sinn sem ég fór yfir ritgerðina fann ég eitthvað sem hefði betur mátt fara, annað hvort smáorð sem vantaði eða ég vildi umorða hlutina. Ég á honum Roald frænda mikið að þakka fyrir ómetanlega faglega ráðgjöf. Hann las ritgerðina yfir og kom með alveg frábærar uppástungur og athugasemdir sem gerðu ritgerðina miklu betri en hún hefði annars orðið. Hann stakk til dæmis upp á því að skipta þessum 3 köflum sem ég gerði upphaflega í nokkra undirkafla til þess að brjóta hana aðeins upp og það svínvirkaði og prófessorinn var afskaplega ánægður með þá breytingu. Einnig Fór Lázaro yfir ritgerðina og benti mér á ýmislegt. Annars á Lázaro meira hrós skilið fyrir almennt umburðarlyndi á meðan á þessari vinnu hefur staðið því að ég var ekki bara að skrifa ritgerðina á þessari haustönn heldur líka að sinna MJÖG stóru þýðingarverkefni sem líka þurfti að skila fyrir jól. Ég þýddi 250 bls. bók (hverrar útgáfu var síðan frestað þar til í vor AARRRGG) frá ensku yfir á íslensku og þýddi líka 3 ræður fyrir Moon-söfnuðinn eftir Séra Sun Myung Moon sjálfan á íslensku. Þegar þetta bættist ofaná BA-ritgerðina, tvo kúrsa í Háskólanum og svo 50% vinnu hjá símanum, þá var nú ekki mikill tími aflögu fyrir félagslíf eða einkalíf og vinir mínir og síðan ekki síst hann Lazaro minn, hafa liðið fyrir gífulegan Nínu-skort í 4 mánuði núna. En núna er þetta að baki og við mér blasir afslöppuð lokaönn í Háskólanum þar sem ég tek 3 kúrsa sem verða náttúrulega piece of cake þegar maður veit að lokaverkefnið er búið. Síðan útskrifast ég í vor! Jibbí!!! Þetta er ótrúlegt hvað þetta hefur í raun liðið.
Hérna er efnisyfirlitið á ritgerðinni minni sem gefur kannski hugmynd um hvernig hún er:
Titill:
Sex, Short-Circuits and the Supernatural
A Feminist Critique on Piers Anthony's The Apprentice Adept
1. Summary
2. Introduction
3. Sexuality: The True Passions of a Robot?
3.1 What women want and what women get
3.2 The eye of the heterosexual male
3.3 The stigmata of love
4. To Be Human or Non-Human, That is the Question
4.1 The origin of artificial intelligence
4.2 The role of the self-willed machines
4.3 The human and the humane
4.4 Convergent evolution
5. The Monstrous Feminine or The Horrors of the Female Body
5.1 Woman as a freak
5.2 Being supernatural
5.3 The horrors of the female body
6. Final Words
Bibliography
Films Referred To