Afmæliskveðja!
Til hamingju með afmælið mamma mín! Vonandi verður þetta góður dagur hjá þér. Ég og Lazaro skata kíkjum við hjá þér í kvöld þegar ég er búin í vinnunni. Við erum nefnilega með ógesslega flotta gjöf handa þér. Ég veit að við erum svaka púkó en þetta verður víst að vera jólagjöfin í ár líka. Vonandi á þér eftir að líka vel. Sjáumst á eftir sveppur.
Hún á afmæli í dag,
hún er unglamb í dag,
hún á AAAFMÆÆÆLIII 'hún mamma!!!
Húúúún er algjör sveppur í daaaag!
Húrra! Púrra! Flúrra! Jibbí!
Enn Frekar Um Flökurleika
BURB! Var að troða mig út inni í kaffistofu hérna í vinnunni. Með tilliti til athugasemda við síðasta blogg mitt þá ætla ég nú varla að þora að segja neitt en mér er ENN ÞÁ flökurt. Er í vinnunni og var að borða jólahlaðborð hérna og er bara alveg að fara að æla. Af skiljanlegum ástæðum vegna dularfullra aðdróttanna í kommentum hérna fyrir neðan og í slúðurdálki SariMario á snúrusíðunni þá panikkaði ég fyrir nokkrum dögum og tók óléttupróf sem var algjörlega NEIKVÆTT og svo byrjaði ég á túr sama dag. Þannig að það er væntanlega hverfandi líkur á að það sé von á erfingja í heiminn. Mér er samt búið að vera svona smá flökurt af og til í 2 vikur og ógeðslega flökurt einmitt núna. Hef ekkert ælt samt. Og þar hafið þið það, er ekki gaman að fá skýrslu um æluþarfir mínar? Næst skrifa ég kannski um prumpuþörf mína sem er alveg alræmd.
Nínos hefur tjáð sig.