The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, November 06, 2003
 
Tilgangslaust Raus

Jæja, ég ætlaði loksins að druslast til þess að bæta myndum frá Perú við ljósmyndasafnið mitt og skannaði inn hvorki meira né minna en 60 myndir frá ferðalaginu! Síðan bara gekk ekki neitt! En ég var nú fljót að leita á náðir snúru-snillinganna og þar benti hin fræga Sario-Mario mér á að eflaust væri ég búin með plássið mitt hjá www.pbase.com. Við nánari athugun kom í ljós að þetta var auðvitað hárrétt. Þannig að ég verð barasta að búa til nýtt ljósmyndasafn sérstaklega fyrir Perú-ferðina. Ég ætla að minnsta kosti ekki að eyða út hinum myndunum sem ég hef sett þarna inn. Ég læt ykkur fylgjast með þegar þetta er tilbúið. Ég var allt í einu að fatta það að það eru bara 3 vikur eftir í kennslu hjá enskudeildinni í Háskólanum. Ég er að vinna í BA-ritgerðinni minni og á að skila henni í byrjun janúar. Ég er samt búin með það mikið að ég hef hugsað mér að vera búin á innan við þremur vikum! Hvernig líst ykkur á þetta plan? Er ég ekki mikill ofurhugi? (gubb, gubb) Ég er alla veganna ákveðin í því að vera ekki að vinna í þessu um jólin, það er alveg á hreinu. Ógeð að vera á síðustu stundu í geðveiku stressi og gera síðan villur eða eitthvað svoleiðis. Ég nenni ekki að tjá mig meira núna. Ég er eitthvað svo andlaus.
|
Sunday, November 02, 2003
 
Óþolandi Klámtrúður eða Andsetin af Djöflinum?

Ég er gjörsamlega búin að vera tryllt í skapinu í allan morgunn. Aumingja Lázaro á þetta nú varla skilið. Ég er bara búin að vera í RAGE í marga klukkutíma. Búin að kvarta og kveina og nöldra alveg stjórnlaust. Þetta er sko MJÖG ólíkt mér þó að ég segi sjálf frá. Ég er ekki svoleiðis týpa, er eiginlega alltaf voða vel stemmd. Ég er núna í vinnunni og maður bara dauðskammast sín. Ógeðslegt samviskubit bara. Ég á ekki til orð. Það er ekki eins og maður hafi yfir einhverju að kvarta, það er allt í svoleiðis fínasta standi hjá okkur núna, fyrir utan það að íbúðin er ógeðslega skítug orðin. Ég þreif reyndar klósettið (bölvandi og ragnandi) áður en ég fór í vinnuna og þegar Lázaro fór að mótmæla geðfrekjunni í mér þá hreytti ég framan í hann að ég gæti alls ekki tekið hans umkvörtunarefni alvarlega þegar hann liti út eins og klámtrúður. Hann var nefnilega nakinn og með alveg hvítar varir af því að hann var að borða skyr. Guð minn góður! Ég hagaði mér alveg eins og einhver kerling með fullkomnunaráráttu. Ég skil bara ekkert í þessu. Ætli ég sé í einhvernju hormóna-kasti eða eitthvað? Strange....látið mig vita hvað þið haldið að hafi komið yfir mig? Ætli ég hafi verið andsetin af djöflinum? Þá gæti ég að minnsta kosti firrt sjálfa mig allri ábyrgð....Múhahaha!!!
Nínos hefur tjáð sig.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives