The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, October 31, 2003
 
Karlrembur Dauðans og Geitakjöt í Mallann Minn

Það er nú ýmislegt dularfullt sem hefur smám saman verið að komast í ljós í sambandi við Perú-ferðina frægu í ágúst síðastliðnum. Ég man að áður en ég varð veikust (það er að segja að áður en ég hætti að borða), þá var mér mjög oft boðinn matur sem að var eins konar kjöt. Lázaro sagði við mig: ,,Þetta er svona eins og lambakjötið ykkar á Íslandi. Þetta er hefðbundin matur frá Perú." Nú, ég náttúrulega tók hraustlega til matar míns og hakkaði í mig góðmetið, enda var þetta bara svona líka djúsí lambakjöt. Það var reyndar svona aðeins öðruvísi keimur af því en ég hugsaði með mér að þetta væri náttúrulega matreitt á annan hátt og auðvitað væri ekkert sem stæðist samanburð við íslenskt fjallalamb. Það var ekki fyrr en núna, 2 mánuðum síðar að Lázaro leiðrétti mig þegar ég var að tala um hvað lambakjötið í Perú hefði verið gott: ,,Þetta var nú reyndar ekki lambakjöt sem þú borðaðir." Ég snéri mér í áttina á honum alveg furðulostin og spurði hvað hann ætti eiginlega við. Hann svaraði mér: ,,Nú þetta var auðvitað geitakjöt! Ekki segja mér að þú hafir ekki vitað það?" Ég starði bara vantrúuð á hann á meðan hann hélt áfram að útskýra hvernig lambið væri heilagt í Perú og ekki étið og blablabla. Ég veit ekki afhverju en ég fékk ógeðslega velgju. Ekki beint útaf geitakjötinu sjálfu enda er geit ekki svo ósvipuð kind ef út í það er farið (maður er bara ekki beint vanur þessu einhvern veginn), heldur meira það að mér fannst ég hafa verið svikin. Geitakjöti var prangað inn á mig án þess að ég vissi. Lázaro bullaði upp þeirri afsökun að þegar hann sagði að þetta væri eins og lambakjötið á Íslandi, hefði hann átt við að þetta væri hefðbundinn réttur í Perú alveg eins og lambakjöt væri hefðbundinn réttur á Íslandi. Yeah, right. Ég held að hann hafi óttast að ég myndi neita að borða þetta ef ég vissi sannleikann í málinu. Ég hefndi mín því í dag og lét hár í matinn hans...muhahah. Annars er búinn að vera mikill umgangur heima undanfarið. Það bætast alltaf fleiri indíánar í hópinn. Það er einn núna nýkominn frá Perú. Hann á 3 bræður hér sem allir eru vinir hans Lázaro. Einn þeirra, sem heitir Rony, kom með þennan nýja og yngsta bróður í heimsókn um daginn. Ég lagði mig fram við að vera almennileg og gekk beina allt kvöldið svo að Miguel, þessi nýi, fengi nú góða mynd af Íslandi og gestrisni okkar. Eitthvað fórum við að tala um kakkalakkamartöðina sem ég upplifði í Perú. Rony fannst þetta alveg bráðfyndið enda kemur hann úr frumskóginum og hann sagði að kakkalakkar væru herramannsmatur djúpsteiktir í olíu og með smávegis lauk. Ég óttast mjög að spyrja Lázaro nánar út í hvað það nákvæmlega var sem ég borðaði annað í Perú en geitakjötið....Síðan verð ég að segja ykkur frá einu atviki sem átti sér stað þetta sama kvöld. Ég var búin að vera geðveikt almennileg, koma með stanslausar veitingar og fylla á glösin hjá Lázaro, Rony og Miguel. Síðan fer ég fram í eldhús til þess að hella upp á meira kaffi. Ég skil spænskuna mjög takmarkað en ég heyrði samt að þeir voru að tala um mig. Ég náttúrulega sperrti eyrun enn frekar og heyri þá Rony segja við Lázaro: ,,Það er aldeilis að hún hefur breyst til batnaðar. Sú er orðin hlýðin!" Ég eldroðnaði í framan af vonsku og varð síðan alveg sótrauð þegar ég heyrði Lázaro segja rogginn: ,,Já, já. Ég var líka búinn að segja þér að ég kynni alveg á svona litla stelpu." (Ég tek það fram að Lázaro er 20 árum eldri en ég svo að 25 ára gömul, FULLÞROSKUÐ KONA getur virst vera stelpa fyrir honum) Rony sagði við Lázaro að hann yrði að kenna sér leyndarmálið. Síðan reka þeir upp svona líka ógeðslegan karlrembusvínshlátur!!! Ég tók mér nokkrar mínútur til þess að ná mér niður. Ég var ekkert smávegis fjúkandi vond! Ég spurði Lázaro seinna um kvöldið (eftir að hafa hellt úr skálum reiði minnar yfir þessari svívirðilegu karlrembu-umfjöllun) hvað Rony hefði eiginlega átt við með því að ég hefði ,,aldeilis breyst" og væri orðin ,,hlýðin" og hvað Lázaro ætti við með því að segja að hann ,,hefði sagt að hann kynni alveg á mig". Þá viðurkenndi hann að einu sinni, fyrir meira en ári síðan, þegar ég og hann höfðum lent í meiriháttar rifrildi, þá sagði hann Rony frá því. Rony sagði honum þá að hann gæti bara tekið mig heim með sér í nokkra daga og síðan skilað mér aftur til Lázaro og þá myndi ég hafa lært að haga mér eins og fullkomlega hlýðin eiginkona!!! AARRRGGGG!!!!!!!!! MACHO PIGS DIE!!! Lázaro (augljóslega) afþakkaði gott boð. Bíðiði bara þar til ég verð gestrisin við þetta lið aftur!
Nínos hefur tjáð sig.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives