Listin að verpa eggjum
Það vill þannig til að ég á 17 ára gamlan dísapáfagauk sem heitir Eydís Ósk, kölluð Dísa. Hún er mesta illgygli og hefur alltaf verið. Þegar hún var yngri (og ég líka) þá tók ég hana út úr búrinu með valdi því að hún vildi aldrei koma út. Núna hef ég ekki tekið hana út úr búrinu í mörg ár af því að ég er svo hrædd um að hún fái hjartaáfall eða eitthvað álíka af hræðslu. Ég var náttúrulega í Perú í mánuð og þegar ég kom til baka tók ég eftir því að goggurinn á Dísu gömlu var orðinn heldur langur og barasta kominn nærri því að stingast inn í hálsinn á henni. Ég fékk auðvitað áfall af hræðslu og fór næsta dag í Dýraríkið svona til þess að spyrjast fyrir um hvað ég gæti gert. Þau sögðu að ef hún væri ekki að brýna á sér gogginn þá yrði barasta að klippa hann. Mér leist ekkert á þessa hugmynd af því að ég var eins og áður sagði svo hrædd um að Dísa myndi bara ekki lifa slíka meðferð af. Ég sagðist alls ekki treysta mér til þess að gera þetta svo að þetta hjálpfúsa fólk í Dýraríkinu sagði mér að koma bara með hana og þau myndu gera þetta fyrir mig. Ég þakkaði fyrir mig og ætlaði að fara þegar að þau stungu upp á því að úr því að hún væri svona gömul þá veitti henni ekkert af auka-vítamínum. Þannig að ég keypti hunangsstangir, vítamíndropa í vatnið og þurrkuð mauraegg sem eru bara hreint prótín. Hunangsstangirnar voru svo harðar og Dísa svo gráðug þegar hún fékk þær að hún braut nú bara á sér gogginn sjálf þannig að það vandamál var úr sögunni. Droparnir og mauraeggin höfðu aftur á móti ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Eftir 2 vikur á þeim kúr var ekki að sjá að Dísa liti neitt betur út. Hún var enn þá sköllótt og tætt eins og hún er búin að vera í mörg ár. En einn daginn þegar ég kem heim og kíki á hana, haldiði að blasi ekki við mér 2 egg í botninum á búrinu hennar!!! Ég átti ekki til eitt einasta orð! Hún hefur ekki verpt eggjum í 10 ár og það gerði hún bara þegar hún átti karl. Engir urðu nú samt ungarnir af því að hún lá ekki á þeim. En það er greinilegt að vítamínin hafa haft ótrúleg áhrif á hana!
Með Hausverk Alla Daga
Nú liggur maður laglega í því. Ég er auðvitað ekki búin að blogga svo lengi að þeir fáu gestir sem ég fékk áður eru örugglega búnir að gefa mig upp á bátinn fyrir löngu síðan. Ég ætla nú samt að gefa smá skýrlus hérna svona aðeins til þess að afsaka mig og í þeirri von að einhver kíki af og til á mig og mitt show. Ég er náttúrulega á fullu í skólanum og vinnunni. Ég er sem betur fer að verða búin að kára þýðingarverkefnið en það hefur tafið mig frá náminu sem er ekki gott. Ég er líka byrjuð á ritgerðinni minni en vildi gjarnan geta einbeitt mér betur að henni. Það er samt ferlega gaman að vinna að henni, sérstaklega af því að það gefur mér tækifæri til þess að horfa á margar skemmtilegar bíómyndir eins og Alien Resurrection, Terminator III og Metropolis, en ég mun nota þær í ritgerðinni. Annars hef ég ekki tíma til þess að blogga meira núna, líf mitt er einn rússíbani og ég er með hausverk.
Nínos hefur tjáð sig.