Ég elska Skólann og Lázaro
Nú er allt á útopnu hjá Nínos og Lázaro litla. Ég er á fullu að vesenast í BA-ritgerðinni minni sem ég þarf að skila núna um áramótin. Einnig hef ég tekið að mér risaverkefni í þýðingum sem ég má ekki tala nánar um eins og komið er en það á líka að klárast mánuði fyrir jól!!! AARRRGGG!!!! Ég veit ekki hvort ég get þetta. Svo er ég í tveimur kúrsum í Háskólanum og hélt að það væri bara vel sloppið en viti menn. Báðir kennararnir hafa misst stjórn á sér og láta okkur lesa hrikalega mikið. Í þessum kúrsum þarf ég að lesa samanlagt 13 skáldsögur!!! Er þetta í lagi ég bara spyr? En það er samt svo skemmtilegt að hafa nóg að gera. Það er stressandi en gefandi líka. Mér finnst þetta nám barasta hafa tekið svo skamman tíma. Það er frekar undarlegt að vera byrjaður á BA-ritgerð strax, en ég útskrifast ekki fyrr en í vor. Ég eiginlega varð bara að gera BA-ritgerðina núna af því að ég var búin að ljúka eiginlega öllum kúrsunum sem boðið var uppá á haustönninni. Ég náði ekki að fylla 15 einingar. Það verður líka bara lúxus að vera búin með ritgerðina svona langt áður en maður útskrifast. Þetta verður æði. Ég hlakka líka svo til á vorönninni af því að þá fer í í kanadískar unglingabókmenntir og les til dæmis alla Önnu í Grænuhlíð seríuna. Þetta verður æði!!! Ég elska að vera í skóla! Lázaro er líka alveg frábær af því að hann styður mig svo í bæði námi og starfi. Hann vill að ég mennti mig eins mikið og ég get. Áður en önnin hófst þá sagðist hann ætla að koma mér á óvart. Næsta dag afhenti hann mér umslag sem var með mjög skemmtilegri utanáskrift sem ég hef ekki eftir hér. Þegar ég opnaði það blöstu við mér 35 þús. kr. Ég starði bara á hann og spurði hvað hann ætti eiginlega við með þessu. Ég var svo græn að ég áttaði mig alls ekki á þessu. Hann sagði að þetta væri fyrir skólagjöldunum mínum í Háskólanum. Ég varð bara hrærð og mundi allt í einu eftir því að hann hafði minnst á það fyrir mörgum mánuðum að honum langaði að borga skólagjöldin fyrir mig til þess að sýna mér móralskan stuðning. Hann er alveg frábær hann Lázaro. Það er ekkert gaman að vera með konu sem er alltaf að læra og skrifa og lesa eitthvað og getur ekki alltaf verið til taks þegar hentar. Hann sýnir sko fullan skilning á mínu námi og vel það. Áfram Lázaro!! Ég elska þig mi amor!!!
Nínos hefur tjáð sig.