The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Sunday, September 07, 2003
 
Hryllings-Ferðasaga

Það var ekkert smávegis erfitt að yfirgefa Perú þrátt fyrir allt. Það var mjög erfitt að segja bless við alla og mamma hans Lázaro fór að gráta á flugvellinum. Sniff, sniff. Fyrir utan hvað þetta tók á tilfinningalega þá lentum við í algjörri martröð á leiðinni heim. Í fyrsta lagi vil ég minnast á að ég á gullkort frá Visa. Ég fékk mér nýtt pin-númer áður en ég fór út til þess að allt væri nú í lagi og ég gæti tekið út peninga í Perú. Ég meira að segja prófaði kortið í hraðbanka hér heima og það virkaði alveg. Þegar 2 vikur voru liðnar í Perú var ég bún að eyða öllum gjaldeyrinum mínum en hafði engar áhyggjur vegna þess að ég taldi mig geta tekið út peninga hvenær sem er. Það var ekki rétt. Hvert sem ég fór var pin-númerinu hafnað og sagt vera rangt. Sem betur fer reddaði Lázaro mér með peninga það sem eftir var og ég hugsaði með mér að þetta hlyti bara að vera eitthvað vandamál í Perú. Á flugvellinum í Lima kom öll fjölskyldan til að kveðja okkur og sem betur fer biðu þau á meðan við fórum í gegnum tékk-innið. Við vorum í geðveiku stressi af því að það var allt troðið af fólki og klukkan orðin 22:20 en vélin átti að fljúga 23:59. Við vorum með 4 ferðatöskur og ein þeirra var full af kaffi, 20 kíló í litlum, 1 kílóa pappírspokum, leit svona út eins og kókaín-sending. Ég skil bara ekki af hverju við þurftum að opna töskurnar??? Dettur ykkur nokkuð í hug af hverju? Alla veganna þegar því var lokið var Lázaro látinn fá eitthvert blað til að fylla út en ég fékk ekkert. Síðan ætlum við beint í vegabréfsskoðun en erum stoppuð. Ástæðan er að við þurftum að borga flugvallaskatt. VIð reyndum að malda í móinn vegna þess að á miðunum okkar stóð að við værum búin að greiða slík gjöld en flugvallayfirvöld í Perú höfðu engann áhuga á slíku og heimtuðu 50 dollara fyrir okkur saman. Nú voru góð ráð dýr vegna þess að Lázaro var nánast búinn með sínapeninga, átti 20 dollara eftir og ég bara með kortið. Og það tekur sko nánast enginn kort í Perú. Ég varð að hlaupa aftur til baka í gegnum alla mannþvöguna og reyna að taka út peninga í hraðbanka en það var alveg vonlaust. Alltaf var pin-númerið sagt rangt. Við sáum fjölskylduna í mannþvögunni og sem betur fer gat ég troðið mér til þeirra og mágur Lázaro var með einhverja peninga á sér sem dugðu. Það voru samt erfiðleikar fyrir okkur að komast aftur inn í vegabréfskoðunina af því að við fórum útaf öryggissvæðinu til að komast að familíunni. Guði sé lof að þau voru enn þá þarna því annars hefðum við ekki farið neitt. Við vorum að brjálast úr stressi í biðröðinni í vegabréfs-skoðunina af því að klukkan var orðin 23.30!!! Loksins kom að okkur og þá var mér ekki hleypt í gegn af því að ég var ekki með útfyllt eyðublað. Lázaro útskýrði að ég hefði aldrei fengið neitt blað og þá sagði konan mér að fara á næsta bás. Þar var brjáluð röð og ég neyddist til að troða mér framfyrir því annars hefðum við misst af fluginu. Fólkið í röðinni brjálaðist, sérstaklega ein kona sem kallaði mig öllum illum nöfnum á ensku. Ég lét sem ég heyrði ekki í henni en á þessari stundu vorum við bæði orðin virkilega hrædd. Lázaro kom með mér og konan á þessum bás fyllti út fyrir mig eyðublað voða róleg og sæt og sagði síðan að þetta myndi kosta 14 dollara! VIð fengum algjört sjokk af því að við áttum nákvæmlega 1 dollara eftir í vasanum. Lázaro lenti í svaka rifrildi við hana að ég hefði átt að fá þetta eyðublað í tékk-inn eins og hann og það væri ekki rétt að rukka okkur um mistök flugvalla-starfsmanna. Hún gaf sig ekki í lengri tíma en á endanum var fólkið í röðinni farið að ókyrrast það mikið að hún skrifaði á miðann "no cancelled" sama hvað það þýðir og hleypti okkur í gegn. Þá tók við hlaup að hliðinu sem maður gengur í gegnum og handfarangurinn er rannsakaður í svona x-ray skanna. Ég var með keramik styttur í plastpoka og var látin rífa þær upp sem tók tíma því þær voru allar vafðar inní klósettpappír! Loksins tók við kapphlaup að hliðinu og þar biðu tvær mjög reiðar flugfreyjur sem sögðu okkur að hlaupa hraðar því að öll vélin var að bíða eftir okkur. Þar sem við hlupum framhjá þeim og út heyrðum við þær kalla: ,, Og reynið að vera á réttum tíma næst!!!" Þar sem ég sit núna og skrifa þetta finn ég bara hvernig hjartslátturinn eykst stöðugt við upprifjunina á þessari martröð. Þetta var svo skelfileg upplifun. Þegar við komumst inní vélina áttuðum við okkur á því að við vorum ekki hlið við hlið heldur langt frá hvort öðru. Ég spurði konuna sem sat við hliðina á mér hvort hún væri til í að skipta við Lázaro þar sem að hann sat líka í gluggasæti alveg eins og hún og hún var eins. Hún sagðist íhuga það eftir flugtak og ég settist niður. Síðan hætti hún við. Hún sagði bara í opið trýnið á mér : ,,Nei. ég skipti um skoðun, ég vil ekki skipta við ykkur" Ef að ég hefði neitað einhverjum svona myndi mér finnast erfitt að þurfa að sitja við hliðina viðkomandi í 8 klukkutíma á eftir. En henni fannst þetta greinilega allt í lagi. Eftir allt sem hafði gengið á áður var mér alveg nóg boðið og ég snéri mér undan og þetta er kannski hallærislegt en það láku nokkur tár niður af þreytu og vonsku. Ekki gleyma því að ég var enn með matareitrun og niðurgang á þessari stundu og á sterkum sýklalyfjum þannig að þetta var eiginlega of mikið stress. Og að þurfa að vera í flugvél í 8 tíma við hliðina á einhverri tík og geta ekki verið hjá Lázaro mínum. Flugferðin gekk svosem áfallalaust fyrir sig nema að því leyti að það er ekki gaman að vera með niðurgang í flugvél og geta ekki talað við neinn. Þetta var samt næturflug og ég sofnaði á endanum.
Klukkan 08.20 lentum við í New York og lentum ekki í neinum umtalsverðum hörmungum nema auðvitað að þurfa að opna kaffitöskuna sem vakti grunsemdir hvert sem við fórum. Við þurftum að bíða í 12 klukkutíma í New York og fengum alveg rosalega góðar upplýsingar um hvernig við gætum skoðað borgina og allt. En viti menn! Kortið mitt virkaði ekki heldur í hraðbönkum þarna og ég er alveg brjáluð út af því. Við vorum alveg peningalaus og þurftum að sitja inná á vellinum næstu 12 tímana á meðan það var 27 stiga hiti og glampandi sól úti í borginni. Sem betur fer gat ég þó keypt einhvern mat handa okkur á stöðum sem tóku við korti. En enga peninga gat ég tekið út. Þvílíkur bömmer!!
Það sem eftir var ferðarinnar gekk síðan áfallalaust fyrir sig. Við vorum alsæl að lenda á íslenskri grundu og ég notaði helvítis kortið í fríhöfninni. Ég prófaði síðan kortið í hraðbanka hérna heima og það virkar ekki. Ég á eftir að fara í bankann og gera allt vitlaust!! Hvurslags þjónusta er þetta eiginlega??? Við lentum í heilmiklum vandræðum út af þessu öllu og ég er búin að skoða miðann minn og ég lagði EKKI rangt númer á minnið!!!
Ég var búin að segja frá því að ég var bitin út um allt fyrir neðan hné af moskító eða flóm eða einhverju ógeði. Sérstakelga fékk ég slæmt sár á hægri ökklann utanverðann. Ég fékk rosalegan bjúg á ökklana í báðum flugunum og í eitt skiptið frá Lima til New York vaknaði ég við það að ég fann að það strekktist á húðinni í kringum ökklana. Ferlega ógeðsleg tilfinning að hreinlega finna eins og húðin á fótunum sé að rifna utan af þeim. Við komum heim kl.05.40 um morguninn og Roald minn yndislegi vinur og frændi beið eftir okkur og keyrði heim. VIð sofnuðum um áttaleytið og sváfum til svona 4 um daginn. Þegar ég vaknaði þá var bjúgurinn eiginlega alveg farinn af vinstra fæti en hægri ökklinn var allur bólginn og rauður og mér var illt í honum. Ég hef fengið einhverja eitrun í fótinn en núna viku seinna er mér enn illt í ökklanum en bólgan er nánast farin og ég er ekkert rauð lengur.
Ég ELSKA Ísland!!!
Nínos hefur tjáð sig.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives