Stutt Kveðja
Jæja, þá er sjúklingurinn kominn heim! Laus frá matareitrun, sýklalyfjum, kakkalökkum og þvilíku. Því miður er ég líka laus frá öllu þessu góða og frábæra í Perú eins og fjölskyldunni, stjúpbörnunum og menningunni. Mig langaði svo að kaupa meira dót. En er samt mjög ánægð með það sem við tókum með heim. Ég verð að blogga nánar um þetta allt seinna af því að ég er svo upptekin í vinnunni núna. Ég vildi bara láta vita af mér og að við Lázaro erum bæði lifandi og allt það. Klæjar ferlega samt undan þessum dularfullu bitum. Lenti líka í veseni með þau sem ég segi frá síðar. Er svo stressuð núna af því að skólinn er byrjaður og ég verð að fara að skrifa BA-ritgerðina mína. ARRGG!!!!