HALDIÐ AF STAÐ
Jæja gott fólk, þá er stundin runnin upp. 1.ágúst komin og ég er að fara af stað til Perú í dag. Ég vona að ég komist í tölvu þarna úti svo að ég geti sett inn svona ein og ein skilaboð en ef ekki, þá sný ég aftur galvösk þann 31.ágúst! Verið þið bless elsku dúllurnar mínar og sendið mér góða strauma svo að ég komist nú lifandi heim og allt svoleiðis.
Bæ,bæ,
Nínos.
Ég er að fara út til Perú ekki á morgun heldur hinn. Guð hjálpi mér....
Brúðkaup
Jæja, þá er best að afhjúpa helgarævintýrin enn einu sinni. Ég var nú reyndar að vinna þessa helgi en fékk frí á laugardaginn vegna þess að gömul vinkona úr menntaskólanum, hún Jóhanna Helgadóttir var að ganga að eiga barnsföður sinn hann Valdimar Fjörni Heiðarsson. Þau eignuðust lítinn Helga Gný síðasta nóvember svo ekki seinna vænna en að láta gefa sig saman. Þau giftust í Strandakirkju í Selvogi en eins og flestir vita er það mjög sérstök kirkja fyrir margra hluta sakir. Sagan segir að maður nokkur hafi verið að sigla til Íslands frá Noregi held ég. Gott ef hann var ekki bara með fullan farm af við. Hann lenti í miklu óveðri og horfurnar voru ekki góðar. Hann hét því að ef Almættið hjálpaði honum úr þessum ógöngum lifandi þá myndi hann byggja kirkju þar sem hann kæmi í land. Þá birtist ljós á himninum sem vísaði honum og skipfélögum hans inn í vík sem kölluð er Englavík og síðan varð Strandakirkja til. Þetta er sagan eins og mig minnir en ekki taka mig á orðinu. Þau skötuhjúin ákváðu alla veganna að láta gefa sig saman þarna og ég fór ásamt fríðu föruneyti, það er að segja Lázaro, Roald frænda og manninn hans Sigurþór. Roald er með risabíl í láni frá vinnunni sinni en hann vinnur hjá auglýsingastofunni Þeir tveir. Hann ætlar meira að segja að vera svo sætur að keyra mig og Lázaro uppá flugvöll í næstu viku, enda veitir ekki af stórum fyrir allan farangurinn sem við höfum meðferðis. Þegar við nálguðumst kirkjuna sáum við afskekktan pysluvagn og furðuðum okkur á því hvers vegna hann væri þarna. Það væri nú örugglega enginn bisness í þessu. En á leiðinni til baka sáum við notagildi pylsuvagnsins enda stoppuðu margir kirkjugestir við og fengu sér eina með öllu. En aftur að athöfninni. Það er alltaf spennandi að sjá hvernig brúðurin er klædd og við vinirnar vorum alveg með það á hreinu að Jóhanna myndi aldrei vera í svona týpískum brúðarkjól. Við höfðum rétt fyrir okkur því að hún var rosalega flott og alveg með sinn eigin stíl. Hún var í síðum svona eiginlega flöskugrænum kjól, með ermum niður á olnboga og með gular rósir í hárinu sem var uppsett. Mér fannst hún alveg ofsalega falleg og samkvæm sjálfri sér. Brúðguminn var líka hinn glæsilegasti. Helgi Gnýr var hringaberi ásamt dyggri aðstoð frá litlu systur hennar Jóhönnu, Dagbjörtu, enda guttinn ekki nema rétt 8 mánaða. Síðan voru báðir feðurnir svaramenn. Athöfnin var öll hin fallegasta og ræðan mjög alþýðleg sem mér finnst miklu meira viðeigandi heldur en alltof mikill hátíðleiki þannig að enginn fatti hvað presturinn er að fara, en ég man ekki hvað presturinn hét. Sungið var lagið við texta Páls postula um kærleikann. Það var þó tvennt sem olli því að þessi athöfn skar sig úr frá öðrum. Í fyrsta lagi þá lét brúðurin bíða eftir sér. Lengi. Maður var bara farin að óttast á tímabili að hún hefði hætt við. Nei, ég segi nú bara svona, þetta er fólk sem er búið að búa saman í einhver ár, það fer varla að fá svaka bakþanka á svona stundu. Þó hefur slíkt því miður gerst. Tuttugu mínútum of seint hófst athöfnin og seinna fékk maður að frétta það að brúðguminn hafði áttað sig á því að það gekk á með skúrum hjá Strandakirkju og hringdi í brúðina. Hún var þá stödd í Ártúnsbrekku og upphófust mikil læti til þess að finna regnhlífar til þess að taka með úr bænum. Laugardagurinn var nefnilega feikilega fínn í Reykjavík veðurlega séð og engum hafði dottið í hug rigning fyrir austan! En athöfnin hefst ekkert án brúðarinnar svo að þetta var ekkert rosa mál enda Helgi litli Gnýr svo fjörugur í kirkjunni að hann hélt öllum í góðu skapi á meðan beðið var. Seinna atriðið sem var svona svolítið öðruvísi var þegar presturinn mismælti sig. Eins og áður sagði heitir vinkona mín Jóhanna Helgadóttir. Presturinn var að spyrja brúðgumann og sagði eitthvað á þessa leið: ,,...vilt þú ganga að eiga þessa konu, Jóhönnu
Stefánsdóttur..."!!! Úpps! Brúðguminn var samt svo snöggur uppá lagið að hann sagði: ,,Jaa, það fer nú eftir nafninu..." Presturinn áttaði sig á mistökunum og var ekki seinn að redda málunum og sagði glettnislega: ,, Ég var bara að testa þig, svona til þess að sjá hvort þú vitir ekki örugglega hvað þú ert að gera". Þetta var bara skemmtilegt enda kirkjan nógu lítil til þess að allir heyrðu mjög vel það sem fram fór og skelltu uppúr. Það eru nú einmitt svona atvik sem er gaman að segja frá seinna. Það þýðir ekkert að fara í þunglyndi af því að hlutirnir gengu ekki upp nákvæmlega eins og maður hafði planað. Lífið er nú einu sinni ekki þannig. Þegar við komum út úr kirkjunni voru margir ferðamenn á vappi sem vildu komast inn í kirkjuna. Það voru nokkrir sem héldu að ég og Lázaro hefðum verið að giftast af því ég var öll hvítklædd og Lázaro í smóking af pabba. Síðan fóru allir í bæinn en ekki án þess að skella sér í pylsurnar fyrst. Veislan var heima hjá þeim í bakgarðinum og þau leigðu risatjald af þessu tilefni. Brúðguminn er matreiðslumeistari og því var ekki við öðru að búast en einhverju stórglæsilegu þegar kom að veitingum. Hann vinnur á Humarhúsinu og félagar hans þaðan sáu um að grilla pinnamat. Nautakjöt, kjúklingur, grænmeti, hörpuskel, túnfiskur og kræklingur voru meðal annars á boðstólum. Síðan var ekki brúðarterta í eftirrétt heldur ýmiss konar konfekt og svo skúffukaka. Mér fannst maturinn lostæti en Lázaro var ekki eins hrifinn enda er matur í hans augum nánast óætur án hrísgrjóna. Hann er svo vanafastur. Það var nóg af drykkjarföngum og voru þau látin liggja í svona ísskúlptúrum. Rosalega flott og mjög sniðugt enda allir drykkir ískaldir. Ég segi það seinn hvað við gáfum þeim í gjöf af því að þau eru kannski ekki búin að opna allt og hver veit nema þau lesi bloggið. Ég vil ekki eyðileggja neitt. Í heildina á litið var þetta virkilega ánægjulegur dagur. Áfram með brúðkaupin!