Andleysi
TVÆR VIKUR!!!!! Það eru tvær helv..vikur í að við förum til Perú!!! Ég veit að ég er búin að tala óþolandi mikið um þessa Perú-ferð, but who the hell wouldn't??? Ég var í enn einni bólusetningunni í dag, sprautu við mýgulusótt og síðan að drekka einhverja kóleru-ólyfjan. Mér var tilkynnt að ég gæti fengið hita af mýgulubólusetningunni eftir 5 daga þannig að 22.-29. júlí gæti ég verið slöpp. En gaman! Ætli þetta sé ekki óhollt? Þá meina ég að fá svona margar sprautur með svona sterkum efnum á þetta stuttum tíma? Örugglega ekki gott fyrir líkamann. En þó betra en að veikjast af lifrabólgu eða mænusótt einhvers staðar í útlöndum! Ég hlakka líka til að fara í brúðkaup hennar Jóhönnu vinkonu þann 26.júlí næstkomandi. Það er spennandi að sjá hvernig það verður allt. Ég er ferlega forvitin. Þau skötuhjúin eignuðust strák síðasta nóvember og því ekki seinna vænna en að láta gefa sig saman. Auðvitað erum við Íslendingar ansi afslöppuð í þessum giftingarmálum. Kannski er maður ekkert skárri sjálfur. Ég og Lázaro trúlofuðumst síðasta desember en höfum enn ekki ákveðið giftingardag. Það verður þó ekki eftir mörg ár, það er alveg á hreinu. Veit einhver hvort hægt er að kaupa nýja lykla á ferðatösku? Ég fann mína gömlu sem er mjög flott Delsey taska en ég veit ekki hvar lyklarnir eru. Það þýðir ekkert að kaupa lítinn hengilás eða neitt svoleiðis því það er ekki rennilás á henni heldur tvær smellur báðar með lás. Taskan er ekkert læst reyndar en ég vil ekki ferðast með hana án þess að hægt sé að læsa henni. Látið mig vita ef þið vitið hvað ég get gert. Ég nenni ekki að blogga meira núna. Ég er eitthvað svo andlaus.
Ninos hefur tjáð sig í bili.
UMFERÐARÓÞOL OG NAKED CHEF!
Það er óþolandi að keyra! Ég er alveg búin að fá nóg sko! Ég þurfti að mæta í vinnuna kl.12 og var eins og vanalega á síðustu stundu enda var ég í bíó til klukkan 02.15 í nótt! Ég vaknaði kl.11 og hentist fram úr til þess að reyna í skyndingu að búa til einhvern mat til að taka með mér í vinnuna og svo Lázaro hefði eitthvað að borða í dag. En ég hugsaði með mér að þar sem það væri sunnudagur þá væri í lagi að vera svolítið sein því það væri nú engin umferð hvort eð er. Ég myndi örugglega ná í tæka tíð í vinnuna. En viti menn! Þegar ég er að keyra niður Álfheimana lendi ég fyrir aftan bíl fullan af gamalmennum og það sem verra er, eitt þeirra einnig við stýrið. Maðurinn keyrði að sjálfsögðu löturhægt og ég þurfti að sætta mig við 20 km/klst. aksturshraða akkúrat þegar ég var að verða of sein í vinnuna. Ég var að alveg að klikkast en hugsaði með mér að ég gæti farið framhjá von bráðar þegar gatan skiptist í tvær akreinar. En neeeii!!! Þá náttúrulega keyrði gamli maðurinn bara á báðum akreinum í einu, beint í miðjunni, þannig að það var vonlaust að fara framúr honum. Ég hefði getað grátið! Það á að taka svona fólk úr umferð og setja það í ökuskóla eða eitthvað. ARRGG!!! En í sambandi við matreiðslu morgunsins, þá fann ég eitthvað frosið hakk og grænmeti og svo skellti ég upp hrísgrjónum með hvítlauk (Lázaro bara borðar helst ekki mat nema með hrísgrjónum). Ég gat auðvitað ekki staðið yfir þessu sjálf allan tímann því að ég þurfti að fara í sturtu og undirbúa mig fyrir vinnuna. Ég neyddi Lázaro til þess að standa yfir pottunum og hræra í þeim og samþykkti hann að gera það með miklum semingi og harmkvælum. Á meðan ég skrúbbaði mig í sturtunni hugsaði ég sem svo að það væri nú kominn tími á að fara að kenna manninum einhverja matreiðslu, þetta ástand væri farið að jaðra við gróft ofdekur. Þar sem ég er í sturtunni og hugsa þetta kemur Lázaro allt í einu askvaðandi inn, algjörlega nakinn en búinn að setja á sig svuntuna mína til þess að það slettist ekki brennandi olía á fjölskyldudjásnin! Ég starði á hann í sjokki og hann sagði að það væri ekki nógu mikill hiti á pönnunni og hvort ég kynni ekki að elda eða hvað, að láta mér detta í hug að hafa helluna svona lágt stillta! Að því búnu rauk hann aftur fram í eldhús. Ég var furðu lostin yfir því hvernig maður sem kann ekki að sjóða egg, getur á innan við 5 mínútum orðið sérfræðingur í að matreiða og það nakinn! Jesús, hvað maður þarf að sætta sig við í þessu lífi...annars var hann ótrúlegt krútt svona bara í svuntunni og engu öðru. Algjör bessewisser!
Af öðrum málum er það að segja að við Lázaro fórum á Hulk í gærkvöldi. EKki það að ég var nú ekkert rosalega spennt fyrir þeirri mynd en Lázaro elskar svona hasarblaðahetjumyndir. Þetta var einhver sérstök sýning sem kallast Power-sýning og mér skildist á dömunni í miðasölunni að hljóðkerfið væri þá eitthvað stillt hærra. Bölvuð vitleysa! Það er sko eins gott að það er ekki dýrara að fara á svona power-sýningu því að ef svo væri þá hefði ég kvartað. Ég heyrði ekki nokkurn mun á hljóðinu í þessari mynd og á öðrum myndum. Þetta er nú meira prumpið. Annars var myndin bara ágæt. Það sem gerir mig kannski ekki dómbæra á þessa mynd er að ég er Tarzan-manneskja en veit voða lítið um Hulk og hvað hann getur gert í hasarblöðunum. Þess vegna fannst mér allt sem hann gat gert í myndinni vera svona heldur magnað. Eins og það að hann gæti stokkið nánast fleiri mílur upp í loft og flogið áfram. Mér fannst hann líka vera alltof tölvulegur eitthvað. Af hverju voru risaeðlurnar í Jurassic Park I svona ógeðslega vel gerðar (já, þÆR standast tímans tönn, sjáiði bara myndina aftur) tölvulega séð en allar myndir sem hafa komið á eftir henni með gervilega tölvutækni nema Lord of the Rings? Það er alveg hægt að gera tölvukaraktera þannig að áhorfandinn geti nánast ekki séð að þeir séu tölvugerðir. Mér fannst aumingja Hulk vera frekar gervilegur satt best að segja en myndin sem slík var alveg ágæt. Það var gaman að sjá Nick Nolte leika brjálaðan vísindamann og pabba Hulks. Hann er nú farinn að eldast svolítið en það er eins og maður sætti sig bara aldrei almennilega við að leikarar skuli eldast. Manni bregður svo. Maður sér þá í einni mynd voða frísklega og unga og svo kemur næsta mynd eftir einhver ár kannski og maður fær bara sjokk yfir öllum hrukkunum og sjúskinu. Það er nú reyndar að koma æ oftar fyrir mig að ég fæ svipað sjokk þegar ég lít í spegil. Ég var að skoða mig í spegli um daginn og prófaði að brosa. Þá sá ég allt í einu allskyns línur sem hafa sko EKKI verið þarna áður! En svona er lífið víst. Allt of stutt.
Nínos hefur tjáð sig.