The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, July 12, 2003
 
Húslekar og Bökunaruppskriftir

Núna er ég í vinnunni á 118 og skemmti mér konunglega, eða hitt þó heldur. Þessar 10 tíma vaktir eru algjört morð. Ég er forvitin að komast að því hvernig nýju vaktirnar verða sem taka gildi í september. Vonandi eitthvað mannúðlegra. Hey, það er bara eins gott að maður haldi starfinu! Það á kannski að skera niður eða eitthvað? Ég er svo ánægð með allt í sambandi við leigjandamálin og íbúðina hans Lázaro. Eyjapeyjarnir ætla að flytjast inn eftir verslunarmannahelgi (missa náttúrulega ekki af þjóðhátíð í Eyjum!) og öll gögn eru klöppuð og klár, leigusamningur undirritaður og þinglýstur og tryggingavíxillinn í höndunum á okkur. Svo þurfti náttúrulega að koma upp eitthvað vesen. Það hringdi í mig í gær kona sem býr í íbúðinni fyrir neðan íbúðina hans Lázaro og hún var að segja að það væri farin að bólgna málningin í loftinu á þvottahúsinu hennar eins og það læki frá þvottahúsinu okkar. Hún sagði að þetta hefði gerst fyrir einhverjum vikum síðan og að hún hafði rætt það við leigjandann okkar og þær grunuðu í sameiningu að þvottavél leigjandans okkar væri ekki nógu vel tengd. A.m.k. sagði konan við mig að það hefði hætt að leka en nú væri það byrjað aftur og hún ákvað að hringja í mig. Ég er búin að hringja í leigjandann okkar en hún svarar ekki. Ég trúi nú ekki öðru en að þetta sé þvottavélin eða eitthvað slíkt því að fyrir hálfu ári síðan létum við skipta um allar pípulagnir í íbúðinni, þar á meðal í þvottahúsinu og líka var gert við niðurfallið þar. Það er samt ótrúlegt vesen að standa í þessu leigjandastússi. Það er alltaf eitthvað svona rugl í gangi. Oh hvað ég hlakka til að verða laus frá þessu öllu í mánuð! Annars erum við Lázaro að undirbúa okkur á fullu fyrir ferðina og hluti af þeim undirbúningi er að búa til heimildarmynd um aðstæður okkar hér á Íslandi. Lázaro er þáttastjórnandi og gengur um allt lýsandi hlutunum á spænsku. Við erum búin að mynda alla íbúðina mína í bak og fyrir og húsið og garðinn. Næst á dagskrá er að biðja leigjandann okkar um leyfi hvort að við megum taka videómyndir af íbúðinni hans Lázaro til að sýna öllum heima í Perú hvað hún er flott. Alla veganna þá er ekki hægt að segja annað en að leigjandinn okkar hafi komið öllu sínu innbúi mjög smekklega fyrir. Það er bara algjör synd að hún sé að fara. Hún hefur staðið sig svo vel. Það er bara vonandi að Eyjapeyjarnir standi sig líka og valdi ekki usla í húsinu. Foreldrar þeirra ætla að koma með þeim í bæinn og hjálpa þeim að koma sér fyrir og hafa tekið þátt í allri pappírsvinnunni þannig að það veitir manni svona ákveðna öryggiskennd af því að guttarnir eru bara 18 ára og varla það. Sumir vilja alls ekki leigja svo ungu fólki en ég held að það þurfi ekkert að vera neitt verra en að leigja einhverjum fertugum sem er síðan í algjöru rugli og stendur ekki við neitt. Aldur er svo afstæður eins og ég og Lázaro vitum manna best, enda 20 ára aldursmunur á okkur!
Af öðrum málum er að það að gerast í mínu lífi að ég er orðin bakstursóð eftir að ég fékk uppskrift af rosalega góðri eplaköku (ekki böku með fyllingu, heldur köku). Ég er búin að nota þetta einfalda deig til að búa líka til sítrónuköku og jólaköku með rúsínum. Maður er bara alveg að slá í gegn! Ég er nefnilega ekki mikið fyrir eldamennsku né bakstur en hef neyðst til þess að elda eftir við Lázaro byrjuðum að búa af því að hann kann ekki einu sinni að sjóða egg! Þeir sem hafa áhuga á þessari uppskrift fá hana hér með:

Eplakaka:

200 gr smjörlíki (best að hafa það við stofuhita)
150 gr flórsykur
=hrært saman
3 eggjum smám saman bætt útí og hrærð við
Síðan bætast við:
200 gr hveiti
1 teskeið lyftiduft
vanilludropar eða möndludropar
Þegar deigið hefur verið hrært og kökuformið smurt með smá smjörlíki er deiginu hellt útí og eplabitum stungið ofaní það. Síðan má strá smávegis sykri og kanil yfir eftir smekk. Rosalega einfalt, rosalega gott. Þetta deig verður síðan að mjög ljúffengri jólaköku með rúsinum. Þá er augljóslega bara rúsínum bætt í deigið og eplunum og kanilsykrinum sleppt. Svo til að búa til sítrónuköku má setja sítrónudropa í deigið og kaupa síðan flórsykur með sítrónubragði sem verður að sítrónuglassúr ef bætt er smá vatni við. Þá er smá sítrónubragð af deiginu og svo sítrónuglassúr settur ofan á kökuna þegar hún hefur kólnað.
Bakist í 45 mín. við 150-170 gráður

|
Thursday, July 10, 2003
 
Vítamín-skortur

Það er aldeilis að ég blogga meira eftir að ég fékk sítengingu heim eða hitt þó heldur! Það er liðin vika síðan ég bloggaði síðast og ég ætti að skammast mín! Nei, djók, ég meina, það er ekki eins og þetta sé einhver skylda, það bíða ekki lesendur í hundraðatali eftir hvað gerist næst í mínu ótrúlega hraða og spennandi lífi. Ég held að það sem trufli mig sé að mér finnst ég alltaf þurfa að skrifa heila grein þegar ég blogga, þetta eru svona rithöfunda-komplexar einhverjir. Ég fór aftur í sprautur í dag útaf Perú-ferðinni og síðan þarf ég að fá eitthvað kóleru-duft sem ég á að hræra í vatn og drekka. Hljómar ekki vel! Þá er samt ekki öll sagan sögð því ég er búin að fá niðustöðu úr blóðprufunni sem var tekin í síðustu viku. Orsakir allra þessara svimakasta sem ég hef verið að fá uppá síðkastið er eins og mig grunaði, B12-vítamín skortur. Ég fæ sprautu fulla af B-vítamíni núna á þriðjudaginn kemur. Einmitt þegar ég hélt að ég væri sloppin við sprauturnar fyrir fullt og allt! Grát.... En að öllu gamni slepptu þá er nú gott að vita að þetta var ekkert alvarlegra en B12-Vítamínskortur. Hann er alla veganna hægt að bæta manni upp. Pæliði í því ef að sviminn hefði verið vegna heilaæxlis eða einhvers álíka! Það er sko ekkert sjálfsagt að vera heill heilsu það er alveg á hreinu. Síðan verð ég að muna að taka alltaf B-vítamín töflurnar mínar á hverjum degi. Og hananú!!!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives