Léttir Dauðans
Jæja, þá erum við Lázaro búin að sýna íbúðina einu sinni og það í fyrsta skipti. Við vorum þvílíkt stressuð af því að við höfum ekkert skoðað íbúðina síðan við leigðum hana núverandi leigjanda og vissum því ekkert í hvaða ástandi hún væri. Við höfum reyndar ekkert nema góða reynslu af stúlkunni sem leigir af okkur núna en maður bara veit aldrei hvernig fólk lifir. Það var frábært að sjá hvað hún hafði íbúðina snyrtilega og fallega. Reyndar var einn hurðarhúnn dottinn af, strákurinn hennar hékk á honum en hún sagðist muna laga það. Þetta var svo mikill léttir fyrir okkur að ég get ekki lýst því. Þegar maður hefur einu sinni lent í því að fá leigjanda sem rústar íbúðinni manns þá er erfitt að treysta fólki eftir það og maður býr sig undir það versta. Við sýndum íbúðina tveimur strákum frá Eyjum sem eru að fara í menntaskóla í haust og þurfa íbúð í ágúst, akkúrat þegar við þurfum að losna við hana. Þeim leist rosalega vel á íbúðina og ég gaf þeim frest til morguns með að taka ákvörðun. Ég ætla nefnilega að negla þá núna um helgina á meðan þeir eru í bænum. Ég samþykki ekki munnlega að þeir fái íbúðina og svo sé bara gengið frá öllu rétt fyrir ágúst. Þá geta þeir bara sagt: Ha, íbúðin? Já, nei við erum hættir við. Þá neyðumst við til að fara út til Perú og skilja íbúðina eftir tóma í heilan mánuð. Ég vil bara að það sé þá gengið frá leigusamning núna um helgina þannig að þeir séu öryggir um að fá íbúðina í ágúst og við getum tekið íbúðina úr auglýsingu og slakað á, vitandi að við séum pottþétt með leigjendur í ágúst. Ég vona að þeir vilji fá hana og við getum bara hætt að hugsa um þetta. Við erum líka búin að betrumbæta samninginn þannig að ef að leigjendur eru með ítrekuð drykkjulæti, brjáluð partý eða slæma umgengni þannig að undan þeim sé kvartað, þá getum við hent þeim út umsvifalaust án þess að endurgreiða þeim leigu sem þeir gætu hafa greitt fyrir þann mánuðinn. Það borgar sig sko að baktryggja sig fyrir öllu. Bitur reynsla hér að baki. :)
Nánar um Íbúðina sem er til Leigu
Íbúðin leigist á 75 þús/mán. en er ekki laus fyrr en í ágúst. Ég skil fullkomlega að fólki finnist 75 þús/mán. vera dýrt, okkur finnst það líka! Það er einungis af illri nauðsyn sem leigan er þetta há, ekki af græðgi! Við erum í raun í vandræðum með þessa íbúð og vildum gjarnan selja hana satt best að segja til þess vera laus við þetta vesen. Í leigunni er innifalinn hússjóður (sem er 8 þús. á mán) en ekki hiti og rafmagn enda allur gangur á því hvernig fólk notar slíkt. Það er vel hægt að halda þeim kostnaði niðri með því að fikta ekki mikið í ofnunum. Við förum líka fram á tryggingavíxil uppá 200 þús. en eins og þið veist er slíkt aldrei innheimt nema fólk bara borgi ekki leiguna eða skemmi hreinlega íbúðina. Þetta er bara svona standard procedure.
Íbúðin er á 2.hæð í 7 íbúða fjölbýli og hún er rúmir 60 fermetrar. Hún er með stærri íbúðum í húsinu. Aðalsvefnherbergið er nokkuð stórt með góðu skápaplássi en hitt herbergið er voðalega lítið. Það er alveg eins gott að vera hreinskilin með það. Fyrir námsmenn datt mér í hug að annar gæti bara notað stofuna sem herbergi (það er hurð á stofunni þannig að það má loka henni) og haft litla herbergið sem lítið sjónvarpsherbergi eða eitthvað. Það er baðkar með sturtuhaus (við gætum líka látið setja sturtuhengi fyrir ykkur), flottar flísar eru á öllum gólfum en nýlagðir dúkar í svefnherbergjum. Geymsla fylgir með niðrí kjallara og þar er kyndiherbergi þar sem hægt er að hengja upp þvott. Annars er stórt þvottahús inní íbúðinni með tengi tilbúin fyrir þvottavél. Það er að sjálfsögðu eldavél og líka ísskápur, gamall en stendur fyrir sínu með litlu frystihólfi. Allt var málað fyrir 6 mánuðum og skipt um pípulagnir, skolp og ofna. Eldhúsið er opið rými sem samlagast ganginum og pláss fyrir eldhúsborð þar. Það eru tvölfaldir gardínukappar fyrir öllum gluggum og nú þegar gardínur í eldhúsinu. Ég bara vona að stúlkan sem er í íbúðinni hafi farið vel með hana og ekki skemmt neitt :Þ Það eru ekki svalir en mjög stór bakgarður og líka fallegt útsýni úr stóra svefnherberginu og stofunni. Mér fannst það mjög gott þegar ég sá íbúðina sjálf í fyrsta skipti enda kann kjallaramanneskja alltaf að meta gott útsýni!
Þrátt fyrir dýra leigu þá eru ýmsir kostir við þetta:
Í fyrsta lagi þá er hlutfallslega hrikalega dýrt að leigja herbergi sem eru svona og svona og kannski með eldhúsaðstöðu, kannski með sérbaðherbergi en kannski ekki o.s.frv. og þú borgar svo kannski 30 þús. kall fyrir ósköpin.
Í öðru lagi þá er fólkið í húsinu kattvænt svo að kisulórur eru ekki vandamál svo lengi sem dýrin eru ekki hlaupandi laus á stigaganginum. Maður getur lent í vandræðum með að fá leiguhúsnæði með gæludýr. Flestir vilja þau alls ekki því miður.
Í þriðja lagi þá gefum við leiguna upp til skatts svo að þið fáið fullar húsaleigubætur, sérstaklega ef þið eruð námsmenn (alla vega held ég að það skipti máli). Þetta þýðir að við neyðumst til að borga 10% af leigunni í skatt en þannig er bara systemið og við viljum að okkar leigjendur fái húsaleigubætur. 75 þús. myndi verða 37.500 á mann ef að 2 leigja saman og svo myndi hluti þess verða endurgreitt til ykkar í hverjum mánuði í formi húsaleigubóta. Ég er ekki viss hvað þær eru háar en ég veit að þær geta hæst farið upp í 50% leigunnar. Þið fengjuð kannski 15-20 þúsund, ég er ekki viss, ég kann því miður ekki að reikna þetta út. Kannski kemur það betur út fyrir ykkur að láta bara einn leigjanda vera skráða á leigusamninginn uppá að fá meiri bætur þó að það séu kannski fleiri að leigja saman, þið skulið athuga það burtséð hvar þið leigið á endanum.
Í fjórða lagi þá mynduð þið leigja af mér og Lázaro og við myndum gera allt til að hjálpa okkar leigjendum. Ef einhverjar af ykkur snúrunum hefðuð áhuga þá getum treyst ykkur til að standa í skilum og hafa góða umgengni (eitthvað sem maður tekur ekki sem sjálfsögðum hlut, tala hér af biturri reynslu) og þið gætuð treyst okkur til að koma rétt fram við ykkur. Við búum rétt hjá (íbúðin er á Kleppsvegi 60, rétt hjá Laugarásbíó) og yrðum ykkur innan handar. Þið gætuð verið eins lengi og þið vilduð í íbúðinni og þyrftuð ekki að óttast að hún yrði seld ofan af ykkur eða eitthvað slíkt. Ef við fáum góða langtímaleigjendur þá höfum við engan hug á að selja. Einnig mynduð þið vita að ef eitthvað kæmi uppá með íbúðina yrði því reddað eins og skot. Við gætum líka reddað ykkur slatta af húsgögnum, það er meira segja einbreitt rúm í geysmlunni nú þegar!
Í fimmta lagi þá er ágætisfólk í húsinu, allir svona á rólegu nótunum og meira að segja tveir kettir á efstu hæð held ég.
Jæja, þá er ég búin að lýsa kostum og göllum eins vel og ég get þannig að þið vitið hvernig málin standa. Leigan er há en það kemur ýmislegt gott á móti, td. það að þið vitið alveg að þið getið gengið að okkur sem vísum í öllu sem viðkemur íbúðinni. Þið gætuð fengið ódýrari 3. herbergja íbúð en hún gæti verið einhver kjallarabora eða greni með leigusölum sem gera ekki rassgat fyrir ykkur og laga ekkert ef eitthvað bilar eða þarfnast viðhalds.
Nínos hefur tjáð sig.
s: 6982175 og 5532176
Kunnið Þið að Hjóla Stelpur?
Elskaðu píkuna þína og lærðu að hjóla rétt
Hjólið hefur stundum verið tengt við erótíska nautn kvenna vegna hinnar augljósu tengsla milli stöðu líkama þeirra og hjólhnakksins. En þrátt fyrir að margir karlar myndu eflaust hafa mikla ánægju af því að ímynda sér að hjólandi konur séu að fá stanslausar fullnægingar út um allan bæ þá er staðreyndin sú að margar konur eiga erfitt með að hjóla vegna dofa í klofinu. Ástæður fyrir þessum dofa og óþægindum sem hrjá margar konur má yfirleitt rekja til þess að þetta holdmikla og viðkvæma svæði þar sem kynfærin eru, er fullt af taugum svo ekki sé minnst á hið ofuviðkvæma snípssvæði. Hvorug þessi svæði þola mikinn þrýsting og ef hann er of mikill getur komið algjör dofi og tilfinningaleysi í þau. Ef kona heldur áfram að hjóla með síendurteknum ofangreindum afleiðingum getur skaðinn orðið varanlegur. Hún getur skaddað taugar og eyðilagt tilfinningu til að finna til kynnautnar á eðlilegan hátt. En lausnin á þessu vandamáli er ekki svo erfið eða flókin. Ef þið elskið píkuna ykkar þá einfaldlega lærið að hjóla rétt! Breytið líkamsstöðunni þegar þið hjólið og ímyndið ykkur að þið séuð að hjóla á gamaldags kennslukonuhjóli. Færið hnakkinn á hjólinu framar og handföngin á stýrinu ofar þar til þið sitjið í uppréttri stöðu á hjólinu. Með þessu móti sitjið þið meira á rassinum en ekki á klofinu og píkukrílið ætti að vera í góðum málum!
Nínos hefur hneykslast.