The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, May 24, 2003
 
Endursagt og þýtt af Nínu Rúnu Kvaran:

5 mínútna hjónabönd í Íran
Í landi þar sem ógiftum pörum leyfist ekki að vera ein saman en löggilt hjónaband jafngildir algjörri skerðingu á sjálfstæði, hafa margar íranskar konur valið annan og tímabundinn kost. Ein bæn hvísluð í flýti gerir samband kærustupars löggilt hjónaband í eins stuttan tíma og parið kýs.

Fati er blaðamaður að nálgast þrítugt og hún er einhleyp. Fyrir skömmu síðan hitti hún Ali, 30 ára gamlan lækni sem er kvæntur og á 2 börn. Það hjónaband var ráðahagur, skipulagður af fjölskyldum beggja aðila. Fati og Ali löðuðust strax að hvort öðru og ákváðu að skreppa eitthvert saman eina helgi. En þau búa í Íran og þar banna siðferðislög ógiftum pörum að fara út saman. Sérstakir ,,byltingarverðir” eru alltaf á ferðinni og sjá til þess að þessum lögum sé framfylgt. Þeir hýða hverja þá konu sem sést á götum úti án þess að vera algjörlega hulin slæðu, 70 svipuhöggum fyrir hverja naglalakkaða nögl og hvert einasta hár sem sést á höfði hennar og þeir neyða einnig öll ógift pör sem sést til á almannafæri til þess að giftast. Þess vegna kusu Fati og Ali tímabundið bráðabirgðahjónaband, svokallað sigheh. Ali hvíslaði bænina sem til þarf, þau samþykktu 3 daga hjónaband og héldu svo til Kaspíahafsins í frí.
Þess háttar hjónaband er fullkomlega löglegt og krefst engra annarra formsatriða en þess að farið sé með bænina og að báðir aðilar samþykki ráðahaginn. Tímabundið bráðabirgðahjónaband getur enst allt frá 5 mínútum upp í 70 ár. Þegar tíminn sem samþykktur var er runninn út, geta málsaðilar farið hvort sína leið og eru þá ekki lengur gift hvort öðru. Karlmenn geta átt margar eiginkonur á sama tíma en kona má ekki eiga fleiri en einn eiginmann, hvort sem hún er gift á hefðbundinn hátt eða í bráðabirgðahjónabandi. Kona verður einnig að bíða þar til hún hefur næst á klæðum áður en hún getur gift sig aftur til þess að hún sé örugglega ekki ófrísk af barni eiginmanns úr bráðabirgðahjónabandinu. Ef svo væri, þá ætti barnið sama erfðarétt og önnur börn þess manns.
Korshid er 55 ára gömul vændiskona í Isfahan. Hún hefur tapað tölunni á þeim skiptum sem hún hefur verið gift. ,,Mín sérgrein eru ungir guðfræðinemar”, útskýrir hún. ,,Þeir fá útborgað á fimmtudögum svo að þá skrepp ég í niðrí háskólann.” Á einni nóttu sængar hún hjá öllum háskólanum og giftir sig á 5 mínútna fresti. Þar sem hún er komin úr barneign þá þarf hún ekki að bíða í mánuð á milli giftinga.
Bráðabirgðahjónabönd má rekja aftur til upphafs Íslams og voru mjög algeng þar til þau voru bönnuð með lögum af Sunni múslimum á 7. öldinni. En Shiah múslimarnir, minnihlutahópur sem settist á endanum að í Íran, neitaði að hætta þessari iðju og því hafa bráðabirgðahjónabönd verið við líði þar til í dag.
Hefðbundin, formleg hjónabönd eiga sér enn stað. Þá er samningur búinn til af þeim sem eiga að giftast eða af foreldrum þeirra og eru ákvæði hans löglega bindandi. Í bráðabirgðahjónaböndum er samningurinn munnlegur og ákvæði hans eingöngu á milli hjónakornanna.
Fati ætlar sér að giftast á hefðbundinn hátt í framtíðinni en henni finnst bráðabirgðahjónabandið mjög hagstætt fyrirkomulag þrátt fyrir að hún myndi aldrei viðurkenna það opinberlega að hafa gifst á þann hátt. Slík hjónabönd teljast mjög lágkúruleg. ,,Þau veita miklu meira svigrúm heldur en varanleg hjónabönd. Þú veist að tímabundið hjónaband tekur enda og ef þú færð nóg af náunganum þá situr þú ekki uppi með hann að eilífu”, útskýrir hún. Skilnaður er mögulegur í venjulegu hjónabandi en undir slíkum kringumstæðum eru það karlmennirnir sem hafa yfirhöndina. Tæknilega séð þurfa þeir aðeins að segja ,,ég skil við þig” þrisvar sinnum í viðurvist vitnis. Í raun er það þó ekki alveg svo auðvelt fyrir þá að skilja.
Fyrirkomulag bráðabirgðahjónabandsins býður þó upp á misnotkun. Karlmaður þarf aðeins að fara með sigheh bænina áður en hann nauðgar konu og hann getur síðan haldið því fram að það hafi verið hans réttur að nauðga henni sem bráðabirgðaeiginmaður. Írönsk lög viðurkenna ekki nauðgun innan hjónabands. Bráðabirgðahjónaböndin skapa líka aðstæður fyrir auðuga og oft eldri menn til þess að kaupa sér eiginkonu ef þeim þóknast svo; bláfátækar fjölskyldur eru oftar en ekki mjög viljugar til þess að selja dætur sínar fyrir ,,giftingargjald” sem fer beint til foreldranna. Þessar ólánsömu eiginkonur eru oftar en ekki rétt komnar á unglingsaldurinn, mjög ófúsar til þess að giftast og eru síðan slyppar og snauðar þegar hjónabandinu líkur. Þá er þeim einfaldlega kastað út á götuna og verða að sjá um sig sjálfar. Fyrir margar stúlkur er skrefið frá hjónabandi til vændis mjög stutt.
En Fati heldur því samt fram að bráðabirgðahjónabandið hafi mikla kosti: ,,Þegar maður er giftur á hefðbundna mátann þá getur maður ekki unnið úti nema með leyfi eiginmannsins. Maður getur ekki ferðast nema að hafa meðferðis löggilt skjal með leyfi eiginmannsins, strangt til tekið á maður ekki einu sinni að fara út úr húsi án hans samþykkis. Hver vill festast í slíkri aðstöðu þegar maður getur gifst hamingjusamlega yfir eina helgi án nokkurs tilstands?”
|
Sunday, May 18, 2003
 
Partý Partý Partý!!!!

Ég var í alveg geðveiku partýi í gær! Ég hef nú stundum sungið með Símakórnum og eftir að við héldum tónleika í Laugarneskirkju um daginn var ákveðið að halda svona lokahóf áður en vð færum í sumarfrí. Hún Sjöfn og dúllan maðurinn hennar, þau redduðu húsnæði og höfðu fyrir okkur eins og þau hafa nú gert áður en í þetta skipti vorum við í sumarbústað við Hafravatn sem pabbi Sjafnar á. Þetta var hrikalega gaman og við pöntuðum mat frá Nings sem var mjög góður (ég elska kínverskan mat) og svo var sumblað og sungið langt fram á nótt. Lázaro hefur löngum kvartað við mig yfir því að partý á Íslandi séu svo leiðinlegt. Þau séu bara ekkert alvöru partý. Allir séu bara að spjalla og tala en enginn syngi og dansi. Þetta er nú rétt hjá honum í sumum tilfellum. Það eru mörg partý svona. Það þorir enginn að rasa út. Þetta var ekki vandamálið í gær. Ég sver það, allt þetta fólk er margfaldsinnum eldra en ég, en Guð Minn Góður, þau kunna að skemmta sér! Það voru barasta allir á útopnu! Við sungum náttúrulega (enda kórfólk) og það skipti öllu máli að það voru svo margir þarna sem gátu spilað á gítar (Nils kom með gítarinn sinn sem að Lázaro hatar reyndar) og svo voru tambórínan hans Inga og harmonikkan hans Rúnars á fullu. Lázaro spilaði líka og söng alveg helling af lögum fyrir þau (þrátt fyrir að hann þoli ekki þennan gítar) við mikinn fögnuð enda gaman að fá svona latinu-sveiflu inní alla rammíslensku slagarana sem voru fluttir þetta kvöld. Mig langar að eignast sumarbústað! Og heitan pott! Og láta byggja við íbúðina mína! Og mitt eigið gufubað! Og einbýlishús!!!!! AARRRGG!!!!!!! Ég er orðin ekkert smá efnishyggjukennd! Ég vil bara fá hið ljúfa líf uppí hendurnar og það strax!!! Gimmí Gimmí Gimmí!!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives