The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, May 08, 2003
 
Varið ykkur konur!
Brúðu-beibin eru komin til að vera.


Silíkonbrjóst í gær-Silíkona í dag!

Eins og flestir vita þá hefur kvenmaðurinn í gegnum aldirnar verið kyngerður á marga vegu, en eins þversagnakennt og það virðist hljóma þá hefur áherslan á konuna sem kynveru sjaldan verið eins mikil og nú á dögum framþróunar og kvenfrelsis. Vissulega hefur hlutverk konunnar í nútímasamfélagi tekið stakkaskiptum miðað við það sem var en þrátt fyrir að nú séu gerðar kröfur til kvenna um að vera sjálfstæðar, vel menntaðar og framagjarnar þá hafa útlitskröfur ekkert minnkað og konur ganga sífellt lengra í því að ná útliti hinnar ,,fullkomnu” kynveru. Konur í kynlífsiðnaðinum hafa löngum uppfyllt þessar kröfur með sínar löngu gervineglur, aflitað hár, tálgaða líkama, hárlaus kynfæri og varir og brjóst uppblásin með silíkoni. En það eru ekki lengur bara klámleikkonur sem stæra sig af slíku útliti heldur er það að verða æ algengara að ,,venjulegar” konur leggist undir hnífinn í þeim tilgangi að ,,fullkomna” líkama sinn frekar og auka sjálfstraustið með til dæmis fitusogi eða silíkonpúðum í brjóstin. En konur góðar, þetta er vonlaus barátta og þið ættuð bara að gefast upp núna strax því hvað er par af silíkonbrjóstum í samanburði við heila konu úr silíkoni! Já, þetta er því miður bláköld staðreynd en þær eru komnar á markaðinn. Brúðu-beibin eða Real-Dolls eins og þær heita á frummálinu hafa brotið blað í sögu kynlífsiðnaðarins og steypt konum af holdi og blóði af stóli. Núna geta kynsveltir karlar einfaldlega keypt sér hina fullkomnu konu, sérhannaða úr silíkoni og heimsending í gjafapakkningu er innifalin í verðinu!

Brúðu-beibin

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér nánar allt um brúðu-beibin geta farið á heimasíðuna sem selur brúðurnar www.realdoll.com Þar er að finna allar upplýsingar um þetta tækniundur sem ollið hefur byltingu á stefnumótamarkaðinum. Núna er það algjör óþarfi að fara í gegnum hið þreytandi og erfiða ferli að finna sér konu, stefnumót og blómvendir heyra sögunni til og rómantík hefur tekið á sig nýjan blæ. Þú hefur bara samband við www.realdoll.com og finnur hinn fullkomna maka. Eða eins og þeir segja sjálfir: ,,Hafi þig einhvern tímann dreymt um að skapa hina fullkomnu konu fyrir sjálfan þig, þá ertu kominn á rétta staðinn.” Notuð hefur verið nýjasta brellutækni frá Hollywood til þess að hanna gervikonur sem eru eins raunverulegar og hugsast getur. Þessi hönnun býður upp á heimsins fullkomnustu ástardúkku. Brúðu-beibin hafa ,,beinagrind” sem er nánast fullkomin eftirlíking af kvenbeinagrind og er því hægt að stilla þeim upp í allar stellingar sem mannslíkaminn ræður við. Þær eru gerðar úr gæðasilíkoni sem er lyktar- og bragðlaust, nema ef væri smávægilegur ávaxtakeimur. Silíkonið er afar sterkt og þolir meðal annars 400° hita og það má hita brúðuna upp undir rafmagnsteppi til þess að gefa líkamanum eðlilegan líkamshita svo að það sé nú notalegra fyrir karlana að kúra sig upp við ,,konuna” sína á köldum vetrarnóttum. Silíkonið hefur mjög eðlilega áferð og hristist og bylgjast á öllum ,,réttu” stöðunum.

Hvernig viltu svo hafa konuna?

Það eru ýmsir valmöguleikar svo að mismunandi smekkur manna megi njóta sín í vali á konu. Það eru sex mismunandi líkamsgerðir sem velja má úr, sumar lágvaxnar og aðrar hærri í loftinu og þær eru einnig mismunandi að þyngd þrátt fyrir að sú þyngsta sé ekki nema um 60 kíló. Þannig að þeir sem vilja hafa konur bústnar verða enn sem komið er að sætta sig við raunverulegar konur. Síðan þegar valinn hefur verið búkur má velja á hann viðeigandi háralit, augnlit og húðlit. Búkarnir hafa mismunandi skóstærðir og menn geta líka valið hvort brúðu-beibin séu með áföstum farða og naglalakki eða náttúrulegum, snyrtum eða engum skapahárum. Karlar með mikla sköpunargáfu eða sérstakan smekk þegar kemur að andlitsmálningu, geta óhindrað æft sig í að farða brúðu-elskuna sína og orðið hálfgerðir heima-snyrtifræðingar, vegna þess að þrátt fyrir að brúðurnar séu mjög fallegar þá geta þær ekki farðar sig sjálfar. Þær eru reyndar nokkuð óvígar í flestu og halda ekki uppi samræðum. En það finnst mörgum karlinum bara hreinasti bónus. Eini gallinn er helst kannski að þær elda því miður ekki mat og þvo ekki þvotta. En hvaða máli skiptir það þegar þú ert kominn með slíka fegurðargyðju í hendurnar?

Kynlífið aldrei betra

Margir ,,fullnægðir” viðskiptavinir hafa skrifað bréf á heimasíðuna til þess að lýsa yfir ánægju sinni með hjónalífið með brúðu-beibinu sínu: ,,Ég fékk brúðu-beibið mitt heimsent í morgun. Ég held að ég sé ástfanginn!” Annar kúnninn skrifar: ,,Brúðan ykkar stendur fyllilega undir væntingum mínum og gerir betur en það. Það eina sem gæti slegið þetta út væri að eiga tvær! Hún Leah mín er með svo fallegt andlit og brjóstin á henni eru ÓTRÚLEG!” Það eru nefnilega ýmsir kostir við að elskast með brúðu-beibi. Í fyrsta lagi þá hefur hún aldrei neitt annað að gera og er því alltaf til taks. Brúðu-beibið segir aldrei: ,,Nei, ég er ekki í stuði.” Hún er alltaf í stuði. Í öðru lagi þarf ekki að óttast kynsjúkdóma eða ótímabæra þungun. Í þriðja lagi þarf ekki að fara í gegnum langt og strangt ferli til þess að táldraga konuna. Það má koma sér beint að efninu. Brúðan kemur til ,,mannsins” síns íklædd léttum sumarkjól, brjóstahaldara, nærbuxum, nælonsokkum og háhæluðum skóm. Hana má þvo hátt sem lágt og nota má hverslags sleipiefni á hana. Öll göt á líkama brúðu-beibsins eru mjög raunveruleg og þola munnur (skreyttur með silíkontönnum- og tungu), leggöng og endaþarmur djúpa innsetningu og það sem betra er, þegar reistur limur er hreyfður fram og til baka í götunum myndast sogkraftur sem eykur á unað hins lánsama ,,eiginmanns” brúðu-beibsins. Kynfæri hennar eru úr annars konar, enn mýkra silíkoni og má skilja innri skapabarmanna í sundur á mjög raunverulegan máta. Brúðu-beibið má setja í ýmsar stellingar en hún stendur ekki uppi sjálf því líkami hennar er svo sveigjanlegur. Hún er í raun eins og sofandi stúlka og nýtur sín vel í hundastellingunni því hún getur kropið. Hún getur vel þolað 200 kílóa þunga svo að þeir sem eiga í baráttu við aukakílóin þurfa ekki að óttast að brjóta hana. Brjóstin eru líka gerð úr sérstöku silíkongeli sem má kreista og klípa að vild.

Hverjir kaupa sér brúðu-beib?

Til þess að vera algjörlega sanngjörn þá eru það nú ekki bara kynsveltir karlar sem gefist hafa upp á því að finna sér raunverulega konu sem kaupa brúðu-beib. Brúðurnar eru töluvert dýrar og því kannski ekki raunhæfur möguleiki fyrir alla. Ein brúða kostar rúma hálfa milljón íslenskra króna enda er hún listasmíð og nánast óhugnanlega raunveruleg, gerð úr rándýru efni. Margir listamenn, listsafnarar, kvikmyndagerðamenn, vísindamenn, fólk úr heilbrigðisgeiranum og fleiri kaupa sér brúðu-beib. Þrátt fyrir að fyrirtækið sem framleiðir þær fari ekki í laununga með kynferðislegan tilgang brúðanna þá má nýta þær á margan annan hátt, til dæmis sem módel fyrir myndlistarnema. Það eru ekki bara einhleypir karlar sem nýta sér brúðu-beibin þrátt fyrir að þeir séu í miklum meirihluta kaupenda. Mörg pör fá sér brúðu-beib til að krydda upp á kynlífið á áhættulausan hátt.

Endalok konunnar?

Er nú svo komið að við konurnar erum orðnar óþarfi? Úrelt fyrirbæri á tækniöld? Getur verið að menn hafi áttað sig á því að það verður aldrei hægt að móta hinn náttúrulega kvenlíkama að þeim óraunhæfu kröfum sem samfélagið gerir til kvenna og því hafi bara verið kominn tími á að kasta okkur konum af holdi og blóði (líka þeim sem eru með silíkonbrjóst) til hliðar fyrir ,,fullkomna” gervikonu? Ekki nóg með að hún hafi útlit hinnar ,,fullkomnu” kynveru með ofvaxin brjóst á tággrönnum líkamanum, þá hefur hún líka hið fullkomna, undirgefna hugarfar sem svo lengi hefur verið reynt að þvinga upp á konur. Hún hefur engann metnað, engar skoðanir, ekkert skap, engann vilja. Þvílík himnasæla fyrir margan langþreyttan manninn á nöldri og veseni með raunverulegar konur!
En hvað getum við konur þá gert? Er úti um okkur eða hvað? www.realdoll.com hefur lausnina við því svari. Núna getum við stelpurnar líka fleygt frá okkur útjöskuðum, eigingjörnum og tillitslausum kærustunum því JÚ STELPUR! Hann er kominn! Brúðu-guminn hefur litið dagsins ljós og hann er til í slaginn! Óaðfinnanlega vöðvastæltur með sífellda standpínu er brúðu-guminn tilvalinn kostur fyrir konur sem eru orðnar þreyttar á misheppnuðum elskhugum. Hann er alltaf til í slaginn og slöpp brjóst, appelsínuhúð, æðahnútar...allt er þetta jafn æsandi fyrir hann því hann á ekki við stinningarvanda að stríða. Reyndar er enn sem komið er bara til eitt einasta módel af brúðu-guma og hann er töluvert dýrari en brúðu-beib þannig að ekki er um algjört jafnrétti að ræða í þessum málum. En hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? Kannski getum við konurnar von bráðar valið úr öllum mögulegum týpum af brúðu-gumum með mismunandi líkamsbyggingu. Þá ætti nú að vera gaman hjá öllum, bæði konum og körlum!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives