The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, April 25, 2003
 
Raðmorðingjar og Fjölskyldan

Nú er gaman hér í bæ! Ég er nefnilega loksins komin með sítengingu! Vá hvað þetta er mikill lúxus! Ég er bara að verða netfíkill vegna þess arna! Nú eru engar afsakanir lengur fyrir því að vera ekki duglegri að bloggast! Það er ótrúlegt að vafra á netinu þegar allt gengur svona hratt fyrir sig og maður þarf ekki að hugsa um hverja mínútu. Ég er byrjuð að kenna Lázaro á tölvuna og netið og allt það. Nú er eins gott að hreinsa út úr tölvunni sorann áður en hann fattar hvaða viðbjóði ég hef safnað að mér í gegnum árin. Ég ætla nú samt ekki að taka út raðmorðingjasafnið mitt. Ég þarf að finna leið til að birta það á netinu. Veit allt um raðmorðingja og á fullt af myndum tengdum því efni. Ok, ég veit ég er klikk en við höfum nú öll okkar galla ekki satt? Talandi um galla, þetta minnir mig á stórfjölskyldu mína í móðurætt sem er öll meira og minna snarvitlaus og stórskrýtin (ég er engin undantekning). Ég og Lazaro fórum í fermingarveislu hjá syni móðursystur minnar og þá neyddist maður til að hitta hluta af þessu pakki. Hrikalega vandræðalegt allt. Fólk sem hefur ekki talað saman í nokkur ár er neytt til að drekka kaffi og meðlæti við hlið hvers annars og halda uppi snatti. Þvílíkur léttir þegar þessu átaki var lokið. Ég var bara í svitabaði lengi framan af veislunni. Þá hef´ði ég frekar vilja vera í tölvunni og flýja frá raunveruleikanum til huggulegri hugðarefna eins og til dæmis raðmorðingja. Nei, nei, þau eru nú ekki það slæm í fjölskyldunni, við eigum bara í samskiptaerfiðleikum, svona eins og raðmorðingjarnir.
Nínos hefur talað.
|
Sunday, April 20, 2003
 
Páskarnir!

Jæja, þá er hátíðin gengin í garð. Gleðilega páska öll sömul. Ég er því miður í vinnunni frá 12-22 í dag og er ekki alveg sátt við það hlutskipti. Mér finnst svona heldur fúlt að þurfa að vera svona allann daginn og langt fram á kvöld hér í 118. Það væri allt í lagi að vinna nokkra tíma, en það er leiðinlegt að geta ekki borðað páskamatinn með fjölskyldunni. Lázaro gaf mér Nóa egg nr.5 og ég tók það hingað með mér í vinnuna svona mér til halds og trausts. Málshátturinn var ,,Fleira er gleði en fébætur einar". Er eitthvað verið að gefa í skyn að maður sé fégráðugur efnishyggjumaður? Annars eru það ekki eggin, maturinn og partýin sem eiga að stýra öllu hjá okkur en þau gera það samt voða mikið. Ég er nefnilega búin að vera að lesa Paradísarmissi eftir Milton og er því í svona frekar trúuðu ástandi þessa dagana. Ég er búin að vera að vinna alla helgina hérna í 118 og þá verður maður svolítið var við hvernig ástandið er í samfélaginu og ég get sagt ykkur það að ég held bara að þetta hafi verið ein mesta djammhelgi í langan tíma. Í gærkvöldi var allt brjálað að gera hérna hjá okkur og á föstudaginn langa var ótrúlega mikið af fólki að hringja í okkur blindfullt og ruglað. Ég er ekkert á móti því að fólk skemmti sér og detti í það en ég var bara alin upp þannig að það var aldrei áfengi haft um hönd á hátíðum eins og jólum eða páskum (reyndar bara aldrei) vegna þess að þessir hátíðisdagar eiga að vera svolítið heilagir og þeir eiga að vera til að gleðja börnin líka. Ég meina, ok ef fólk er barnlaust og frjálst og finnst hin trúarlega hlið jóla og páska ekki skipta sig neinu máli þá getur það náttúrulega djammað eins og það vill en mér finnst samt sorglegt að fólk sýni ekki virðingu fyrir því hvers vegna við erum að halda upp á þessa tilteknu daga. Jólin eru nú yfirleitt stæsta hátíðin okkar en í raun eru páskarnir miklu merkilegri. Jólin snúast um fæðingu Krists og allt það dularfulla sem átti sér stað í kringum hana en á páskunum áttu stóru kraftaverkin sér stað. Jesú var deyddur á hrottafenginn hátt og hann yfirsteig dauðann og mér finnst þessir atburðir verðskulda ákveðna virðingu og það er leitt að vita til þess að fólki sé bara alveg drullusama um af hverju það er að fá frí, bara svo lengi sem það hefur frí til að djamma. Það er nefnilega miklu betri tilfinning að reyna að finna svolítið fyrir heilagleika þessara daga og reyna að komast í aðeins betri tengsl eigin trú. Ég er ekki að segja að maður eigi að láta krossfesta sig eins og sumt fólk sem maður sér í sjónvarpinu en minna má nú á milli sjá. Það er svo sem allt í lagi að minna sjálfan sig aðeins á tilganginn með þessum hátíðarhöldum. Eða það finnst mér a.m.k. Maður ætti líka að nota þennan tíma og hugleiða svolítið um það hvað maður hefur það gott miðað við margan annan. Ég bara skammast mín fyrir að vera að væla yfir því að neyðast til að vinna á páskadag en það er betra heldur en að vera eins og aumingja fólkið sem er búið að vera drukkið kannski alla helgina og á hvergi samastað af því að það er búið að brenna allar brýr að baki sér og enginn vill hjálpa því lengur. Ég er nefnilega enn þá með myndina um fólkið og mannskapinn á Hlemmi í huga. Það er alltaf voða brandari hjá okkur hvað fólkið í Hjálpræðishernum eða í Fíladelfíu er svakalega ofsatrúar og fáránlegt en þessi samtök hafa dregið margan vonlausan einstaklinginn upp úr svaðinu og hjálpað þeim að rétta sig við og það er meira en hægt er að segja um okkur hin sem hugsum bara um okkur sjálf. Það þarf kannski stundum dálítið mikinn trúarhita og ,,ofstæki" til þess að geta náð til einstaklinga sem eru svona djúpt sokknir niður í myrkur áfengisböls og sjálfsniðurlægingar. Ég ætla því bara að vera þakklát fyrir mitt hlutskipti og hamingjusöm með það að ég er að vinna fyrir mér og mínu heimili og byggja upp bjartari framtíð fyrir sjálfa mig. Guð veri með ykkur og gefi ykkur yndislega páska og notalegar tilfinningar.
Nínos hefur tjáð sig.
|
 
Hver var ég í fyrra lífi?
Ég vissi alltaf að ég hefði verið svona töff týpa!
Niðurstöðurnar:
--------------------------------------------------------------------------------
Ég veit svo sem ekki hvað þér finnst um það...en þú varst kvenmaður í þinni síðustu tilvist.
Þú fæddist í síðasta lífi á stað nálægt Suður-Afríku á því herrans ári 1275.
Þú starfaðir sem: húsagerðarmaður, hallarsmiður og/eða kirkjusmiður.
--------------------------------------------------------------------------------Hér er stutt lýsing á þér og högum þínum í síðasta lífi:
Rétt lýsing á þessari persónu er að hún hafi verið miskunarlaus sem velti kalt fyrir sér hverri eigin gjörð, full sjálfstrausts og með járnvilja. Slíkir einstaklingar eru gjarnan dáðir en sjaldnast elskaðir.
--------------------------------------------------------------------------------
Hvaða skilaboð færir fyrra líf þér til þessarar jarðvistar?
Skilaboðin til þín eru: -- Þú skalt berjast gegn hvers kyns ofbeldi og misrétti í heiminum, og reyna að skilja rætur þess og uppruna. Öll heimsins vandamál eiga svipaðan uppruna.
www.betra.net
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives