The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, April 18, 2003
 
Afmæli og Elliglöp

Eins og ég hef minnst á þá átti ég afmæli á síðasta mánudag og varð 25 ára. Nú er spilið semsagt búið hjá mér í raun. Ég veit það nefnilega að eftir 25 ára aldur liggur leiðin bara niður á við. Það er sko vísindalega sannað að við 25 ár hefur líkaminn náð hápunkti sínum í blóma og það verður ekki aftur snúið. Nú er eins gott að fara kýla á rakakremin því að héðan í frá munu húðfrumurnar ekki endurnýja sig á sama hraða á áður og hrukkurnar fara að hrannast upp! Ég er nú reyndar þegar komin með hrukkur sem voru EKKI á mér fyrir 5 árum. Þetta er alveg hryllingur. Hingað til hefur mér þótt gaman að eiga afmæli og flottara að verða eldri en núna finnst mér tíminn fljúga frá mér og æskan líka. Ég finn líka fyrir auknu minnisleysi og öðrum hrörnunareinkennum. Er ekki heldur mikið af því góða að kalla sjálfa sig enn þá ungling á efri unglingsárum? Ég fékk rosalegt áfall um síðustu páska þegar mamma harðneitaði að gefa mér páskaegg sem ég hef ALLTAF fengið alla mína hunds- og páfagaukatíð!!! Mamma sagði að fyrst ég væri farin að búa þá ætti maðurinn bara að sjá um þetta. Ég hef nú aldrei orðið jafn hneyksluð á ævinni. Hvernig er hægt að gera þetta aðeins 24 ára barni sem á enn eftir að taka út heilt ár í líkamlegum þroska?!! Sem betur fer hefur Lázaro séð til þess að ég sé ekki vanrækt á þessu sviði og hann gaf mér í fyrra og núna líka páskaegg nr.5 frá Nóa Síríus. Annars fékk ég nú ágætis pakka á afmælisdaginn. Lázaro gaf mér 7 pínulitla kaktusa (ósk frá mér sjálfri) sem eru rosalega sætir. Þeir eru hver í sínum pínulitla potti og enginn af sömu tegund. Geðveikt sætt. Svo fékk ég hvítt diskastell með forréttadiskum, súpuskálum og matardiskum fyrir 8 manns og það var líka frábært. Ég hef aldrei átt samstætt stell fyrr. Ég fékk tvo hlýraboli og útidyramottu frá hundunum og svo ýmiss konar klingur. Síðan gaf mamma mér trúlofunarhringinn sinn sem maður á að bera fyrir innan giftingarhringinn. Hann er úr gulli með 4 rauðbleikum steinum (rúbínum?) í röð. Mjög fallegt og mikið tilfinningagildi. Ég er líka alveg í skýjunum því að ég og Lázaro erum búin að breyta íbúðinni til hins betra. Henda út og losa okkur við húsgögn sem var ofaukið. Ég mæli með þessu, það er æði að hafa gott gólfpláss! Mamma er þó ekki alveg á sama máli enda finnst henni gólfpláss best nýtt undir húsgögn og ekkert annað.
Hef þetta ekki lengra í bili. Er í astmakasti.
Nínos hefur tjáð sig.
|
Thursday, April 17, 2003
 
Þann 15 .apríl lést Sunna Jakobsdóttir Kvaran, hundurinn minn sem ég hef átt að vini frá 1991. Móðir hennar, hún Sara, lést í nóvember síðastliðnum og Laufey hamstur um daginn svo að þetta er mikill missir fyrir mig á skömmum tíma. Ég var líka búin að eiga Sunnu frá því að ég var 13 ára og 13-25 ára er rosalega langur tími. Móðurbróðir minn hann Bói, gaf mér Sunnu eiginlega áður en hún fæddist því að hann átti Söru áður en hún kom til okkar. Ég sá Sunnu því fæðast og hef fylgst með henni allt til dauðadags. Hún var ofsalega fallegur gulur labrador með stór, saklaus brún augu sem horfðu alltaf svo blítt á mig. Sunna var kannski ekki skarpasti hundur sem ég hef þekkt en hún var besta og meinlausasta dýr sem sögur fara af, nema gagnvart köttum sem henni var afar illa við. Hún elti þá alveg miskunnarlaust ef þeir voguðu sér nálægt húsinu okkar. Þegar ég tók Sunnu inn á heimilið aðeins 7 vikna gamla átti ég fyrir hundinn Kolu sem var gáfaðasti hundur sem ég hef þekkt. Kola var blendingur og hún tók Sunnu strax í fóstur þótt henni hefði reyndar orðið um og ó þegar Sunna reyndi að sjúga á henni spenana! Þær urðu strax mjög góðar vinkonur og afar nánar enda enginn vandamál í sambandi við valdastigann hjá þeim. Kola var foringinn, á því var enginn vafi. Sara, mamma Sunnu, kom ekki á heimilið fyrr en nokkrum árum síðar þannig í langan tíma voru Sunna og Kola bara einar saman. Ég og Roald frændi fórum með þær bókstaflega út um allt og vorum alltaf að vesenast eitthvað með þær, klæða þær í föt og svoleiðis. Þær tóku því öllu mjög vel verð ég að segja. Sunna var í raun algjör engill því að hún er eini hundurinn sem ég þekki sem aldrei urraði eða beit nokkurn mann nema þegar hún bjargaði mér einu sinni. Það vildi þannig til að þegar ég var 15 ára var ég var í göngutúr með Sunnu og Kolu á Langholtsveginum, en ég bý þar nálægt. Þar sem ég er gangandi með hundana kemur allt í einu maður aðvífandi. Hann var frekar ólánlegur að sjá verð ég að segja og skimaði út um allt. Frekar ungur (samt miklu eldri en ég á þeim tíma), krúnurakaður, í gallajakka og buxum. Áður en ég veit af er hann kominn til mín og farinn að spyrja mig alls konar spurninga eins og hvort ég ætti heima í nágrenninu og eitthvað svoleiðis persónulegt. Ég varð svona frekar skelkuð af því að ég sá náttúrulega strax að þetta var ekki góður gæi og mér leist ekkert á blikuna. Ég sagði honum auðvitað ekki hvar ég ætti heima en óttaðist að hann kynni að elta mig og angra frekar. En þá skarst Sunna í leikinn og byrjaði að gelta og urra á mjög árásargjarnan hátt að manninum. Ég varð alveg steinhissa enda ekki vön því að sjá meinleysingjann Sunnu í slíkum ham. En þetta varð mér til bjargar því að manninum var svo brugðið við þessar aðfarir hundins að hann bara allt í einu stökk í burtu mér til mikils léttis. Ég tel enn þann dag í dag að Sunna hafi bjargað mér frá voða því að svona náungar geta farið illa með ungar stelpur sem þekkja ekki hvað karlmenn geta verið útsmognir ef þeir hafa eitthvað vafasamt í hyggju. Svona var nú Sunna, ofsalega næm og með sjötta skilningarvitið.
Núna er Kleina litla eini hundurinn sem eftir lifir á Kambsveginum en við fengum hana eftir að Kola dó 1999. Kleina er því örugglega í töluvert miklu áfalli þessa dagana vegna þess að eins og Sunna, hefur hún aldrei verið eini hundurinn á heimilinu. Hún var vön að hjúfra sig upp að Sunnu og þannig sváfu þær á teppi gólfinu saman. Núna vorum við mamma og Lázaro að reyna að útbúa rúm fyrir hana til þess að henni líði ekki eins illa og fái öryggiskenndina aftur. Hún Kleina átti það til að angra Söru og Sunnu og öldungarnir tóku því misvel. En Sunna lét þetta áreiti aldrei á sig fá þó að Sara reiddist all svakalega á stundum. Sunna hafði nefnilega alveg einstakt jafnaðargeð og þolinmæði og það sást ekki bara á því hvernig hún leyfði Kleina að vaða uppum sig heldur líka á því hvernig hún tók börnum alltaf einstaklega vel, eitthvað sem allir hinir hundarnir gerðu ekki á sama hátt. Jóhanna vinkona okkar og frænka var alveg ofboðslega elsk að Sunna og það var líka endurgoldið enda mátti Jóhanna sig vart hræra án þess að Sunna tæki viðbragð og dillaði skottinu. Jóhanna kom stundum með lítil frændbörn sín til okkar og þá leyfði Sunna þeim alltaf að vesenast með sig og kippti sér ekkert upp við það þó að klipið væri í nefið á henni og togað í skottið. Svona var bara hún Sunna. Alveg einstaklega blíð en þver og þrjósk eftir því og vanaföst.
Við munum öll sakna hennar sárt og vitum að nú líður henni betur að vera laus frá böli og þjáningum krabbameinsins sem lagði hana að velli. Hún var hluti af okkar fjölskyldulífi í mörg ár og skilur eftir sig tómarúm sem einungis góðu minningarnar um hana geta fyllt.
|
 
Dánartilkynning

Ég átti afmæli þann 14.apríl og daginn eftir lést hundurinn minn og félagi til 12 ára Sunna. Ég mun skrifa um hana síðar, ég treysti mér ekki til þess núna, ég er svo miður mín og í miklu áfalli.
|
Monday, April 14, 2003
 
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag! Ég á aaaaffmmæææli ég sjááálf!!!! ÉG Á AFMÆLI Í DAG!!! Ég óska sjálfri mér til hamingju með daginn, blóm og pakkar vel þegið! Jibbíí!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives