The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, March 27, 2003
 
Prumpað á Nemendaskrá

Ég var að fatta það að á morgun rennur úr frestur til að skrá sig í kúrsa fyrir næsta vetur í háskólanum! Mér finnst þetta fólk nú vera ansi snemma í þessu. Ég fór í gær, miðvikudag, á Nemendaskrá til að spyrjast fyrir um þetta og fá skráningareyðublað og ég meina það, þessar konur á Nemendaskrá eru bara trylltar á geði! Sérstaklega ein ónefnd sem að var bara eins og litla stelpan sem var andsetin af Djöflinum í The Exorcist! Það bara ætlaði af henni hausinn að ég skildi ekki hafa verið búin að lesa tölvupóstinn frá þeim. ,,Þú getur nú bara lent í alvarlegum vandræðum ef þú lest ekki tölvupóstinn frá okkur góða mín!" Þær eru svo dónalegar að ég hef aldrei vitað annað eins. Ég svaraði að ég væri nú ekki búin að kíkja á póstinn en fyrst ég væri nú komin þarna til þeirra hvort ég gæti ekki fengið eins og eitt skráningarblað til að fylla út. ,,Hvað áttu við!!!! Þú ÁTT að gera þetta á Netinu! Þetta myndirðu vita ef þú læsir tölvupóstinn!" Ég starði í forundran á manneskjuna og sá að hún var orðin rauð í framan af reiði og hneykslan og ég var sjálf farin að roðna af pirringi. Ég spurði hana góðlátlega: ,,Ertu að segja mér að ég MEGI ekki fá skráningablað?" Ég horfði á hana og leit niður á borðið hennar þar sem eyðublöðin lágu í bunkum. ,,Ja...ef þú endilega vilt gera þetta á gamla mátann", sagði hún og rétti mér eitt blað og snéri sér síðan strax undan og fór að vinna í tölvunni sinni. Ég muldraði þakkir og gekk út með sárt ennið. HVAÐ ER AÐ ÞESSUM DÓNALEGU BELJUM Á NEMENDASKRÁ HÁSKÓLA ÍSLANDS??? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þær eru að rífa kjaft við mig og fleiri nemendur út af því einu að því er virðist að við látum þær sinna því sem þær fá borgað fyrir. Það getur enginn skipað mér að lesa tölvupóstinn minn! Það er algjörlega mitt mál og einnig ef ég missi þá af einhverjum upplýsingum í kjölfarið. En ég er í fullum rétti til þess að koma í eigin persónu á Nemendaskrá, spyrja allra þeirra spurninga um skráningu sem ég vil og síðan skrá mig á staðnum ef mér hentar það! Ég veit að það auðveldar þeim starfið að fólk geri þetta á Netinu en það er engu að síður enn þá þeirra starf að veita nemendum upplýsingar og þjónustu varðandi skráningu í nám. Ég meina, ég vinn sjálf í þjónustustarfi á 118 og það myndi auðvelda mér starfið mjög ef að kúnnarnir vissu alltaf fullt nafn eða heimilisfang á fólkinu sem það vill símann hjá en svoleiðis er það bara ekki! Þá verður maður bara að hafa aðeins meira fyrir því að finna númerið, stundum tekst það og stundum ekki. Ekki fer ég að garga á mína kúnna:,,Þú ÁTT að vita fullt nafn ef þú vilt símanúmer!" Hvað í andskotanum er að þessum konum? Eru þær með mikilmennskubrjálæði af því að þeim finnst þær svo mikilvægar að vinna á Nemendaskrá og hafa einhvers konar vald yfir nemunum eða eru þær með minnimáttarkennd yfir því að fólk sé að mennta sig allt í kringum sig á meðan þær eru fastar í sama augljóslega leiðinlega starfinu, eða það hlýtur að vera leiðinlegt fyrst þær eiga svona erfitt með að sinna því! AARRRGG!!! Mikið væri lífið miklu skemmtilegra ef að fólk reyndi að vera aðeins jákvæðara í viðmóti við samferðamenn sína. Það hefði verið hægt að benda mér á allt þetta net-dæmi á mun góðlátlegri hátt þannig að ég færi glöð út af skrifstofunni í stað þess að hröklast þaðan út eins og glæpamaður. Ég mæli með að þær verði allar sendar tafarlaust í Anger Management Therapy til að ná stjórn á reiði-og ofsaröskun þeirri sem augljóslega er smitsjúkdómur á þessari guðsvoluðu Nemendaskrá. Vonandi þarf ég aldrei að fara þangað aftur!
Nínos hefur tjáð sig.
|
Sunday, March 23, 2003
 
Ég vissi að ég væri eitthvað Sadó-Masó!

dominant
You have a dominant kiss- you take charge and make
sure your partner can feel it! Done artfully,
it can be very satisfactory if he/she is into
you playing the dominant role MEORW!


What kind of kiss are you?
brought to you by Quizilla
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives