| |
Thursday, February 27, 2003
Sólarorka My Ass!
Maður er bara í sjokki. Það er helgi framunda og ég þar EKKI að vinna eða gera einhver risa-heimaverkefni! maður veit bara ekki hvað maður á að gera við sjálfan sig. Þetta eru aðstæður sem koma ekki oft upp í mínu lífi. Það liggur við að maður panikki bara yfir þessu. Ætli maður eigi ekki bara eftir að liggja í leti þar sem maður er þokkalega búinn að klára alla orkuna í þessari miðvetrarprófstörn. Annars var ég að lesa um einhvern mann á Indlandi (hvar annars staðar væri hægt að finna svona hugsjónamann?) sem hefur ekkert borðað í fleiri ár en segist fá alla sína orku beint frá sólinni. Hann horfir á sólina þegar hún er að koma upp og þegar hún sest á kvöldin (líklega svo hún blindi hann ekki) og sogar orkuna upp í gegnum augum. Þetta er nú bara eins og í Stephen King sögu! Hann segir sér líða mjög vel og hann sé alltaf endurnærður og hress. Ég veit nú ekki hvernig þetta gengur upp því að þegar ég vissi síðast þá erum við mannfólkið með heitt blóð en ekki kalt eins og skriðdýr og því ætti sólin ekki að nægja okkur sem orkugjafi. Hell, hún er ekki einu sinni nóg fyrir skriðdýrin, þau þurfa líka að borða þótt það sé ekki eins oft og við spendýrin. Að vera með heitt blóð krefst gífurlegrar orku sem við fáum úr hitaeiningum og þó að sólin sé góð og allt það þá finnst mér nú líklegt að það sé góð og gild ástæða fyrir því að við komum útbúin tanngarði frá náttúrunnar hendi. Það er sko eins gott að þessi náungi fari ekki að mæla með þess konar sólardýrkun hér á landi, við myndum öll drepast í skammdeginu! Hver vill líka sleppa því að borða! Hvurlags meinlætalifnaður er það eiginlega? Það sem fólki dettur í hug.....
|
50 ára á föstu, 100 ára í sambúð...
Ég er nú ekki ánægð með hvað ég hef lítið getað bloggað að undanförnu. Það er nú meira hvað maður er alltaf upptekinn. Ég bara hef aldrei tíma til ða gera neitt og sá litli tími sem ég finn til þess að gera eitthvað annað en að vinna, læra og sjá um almennt heimilishald, líður ekkert smávegis hratt! Ég verð 25 ára næsta apríl og ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst þetta bara svakalegt. Ég trúi því ekki að svona sé komið fyrir mér! Maður man eftir því þegar maður var lítill að fullorðna fólkið var alltaf að tala um hvað tíminn liði hratt og að árin hlypu í burt og maður sjálfur upplifði tímann sem einn allsherjar hægagang. En ekki lengur gott fólk. Það er á svona undanförnum 5 árum sem þetta hefur verið að breytast hjá mér. Mér finnst tíminn fjúka frá mér og ég fæ svona ónotatilfinningu við tilhugsunina um hvað lífið er óhugnanlega stutt. Það er svo margt sem maður vill gera og maður hélt alltaf að það væri ekkert mál, en núna er maður að átta sig á því smám saman að það verður aldrei tími til þess að koma öllu í verk sem maður vildi. Mér finnst þetta alveg ofsalega ósanngjarnt. Á meðan við mennirnir höfum að meðaltali svona 75-85 ára lísferil (a.m.k. hér á 'Islandi), þá hafa Galapagos-risaskjaldbökurnar svona 200 ár eða þar um bil! Mér finnst 200 ár láta miklu nærri lagi. Þá gæti maður eytt fyrstu 100 árunum í að mennta sig og koma sér á framfæri og ferðast og allt það, síðan gæti maður í rólegheitunum eytt næstu 100 árum í að eignast börn og fjölskyldu og svoleiðis. Ég geri þó ráð fyrir að líkamsklukka kvenna yrði stillt upp á nýtt til að þetta gæti átt sér stað líffræðilega. Ég verð bráðum 25 ára eins og ég sagði áðan. Það þýðir að ég er líklega búin með meira en 1/4 af þeim tíma sem ég hef, eiginlega 1/3 ! Guð minn góður ég held ég leggist í þunglyndi. Það er eins gott að vera góður við þá sem maður elskar og vera góður við sjálfan sig því að það er í raun ekki tími til neins annars.
Nínos hefur talað.
|
Sunday, February 23, 2003
Jæja, þá er ég búin að læra fyrir breska bókmenntaprófið á morgun. Það hringsnúast sonnettur og kviður í hausnum á mér. Ég er bara ekki viss um að ég bíði þess bætur að hefa lært svona stíft. Það sorglega er að svo verður þetta allt farið úr minninu svona viku eftir próf. Ég er í raun á móti utanbókarlærdómi nema að fólk sé að læra eitthvað eins og tungumál þar sem hann er nauðsynlegur. Maður hefði haldið að það væri miklu mikilvægara að læra sjálfstæða hugsun. Þið vitið, læra að greina, sundurliða og pæla í hlutunum og færa síðan rök fyrir niðurstöðunum. Auðvitað get ég nú ekki kvartað þannig lagað, þetta þarf maður nú að gera í öllum ritgerðum í Háskólanum. Ég fer samt ekkert ofan af því að það sé úreltur kennsluháttur að neyða mann til þess að læra utanað nákvæmlega hver samdi hvað og hvenær. Það á að kenna manni að lesa bókmenntirnar á sjálfstæðan og gagnrýnan hátt en ekki að kenna manni að læra þær nánast utanað. Ég er mjög hlynnt ritgerðum og verkefnum en illa við próf. Hvað segja líka einkunnir úr utanbókarlærdóms-prófum? Þær segja alla veganna ekki neitt um gáfnafar, það er alveg á hreinu. Ég þekki fólk sem er svo nautheimskt og ófrumlegt að raunveruleg naut slá þeim við að öllu vitsmunalegu leyti, en hefur síðan þennan líka límheila eða svamp í hausnum. En þetta fólk (með fullri virðingu, ég veit líka að það eru til límheilar sem eru gáfaðir) nær ekki sama árangri þegar það þarf að hugsa sjálft og færa rök fyrir ákveðnum akademískum málflutningi. Við skulum ekki gleyma því að límheili virkar svipað og flugnalím (þið vitið, svona límband sem flugurnar festast í). Það festast á því flugurnar, en þær drepast. Eins er með gegndarlausann utanbókarlærdóm, honum hættir til að vera eins og dauðar upplýsingar sem við höldum til haga í ákveðinn tíma en skjótum síðan út í algleymið fljótlega. Þar hafið þið það.
Nínos hefur talað :)
|
Hvaða líffæri er ég?
Þetta er nú bara hreinn og klár viðbjóður!
 Congrats ur the TONGUE, get busy
**************What Part of the body are U?************* brought to you by Quizilla
|
|
|