The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, February 22, 2003
 
Auglýst eftir tónlistarmönnum

Hér með auglýsi ég eftir tónlistarmönnum sem hafa áhuga á að spila í Suður-Ameríska hljómsveit með Lázaro. Lázaro spilar á fyrsta rafmagnsgítar en það vantar í allt annað. Gítarleikara, bassaleikara, trommuleikara, hljómborðsleikara og hvað sem vera vill, jafnvel söngvara. Þeir sem hafa áhuga hafið samband í kvaranita@hotmail.com og skrifið smá upplýsingar um sjálfa ykkur. Nafn, aldur og fyrri störf. Ekki neitt dóp eða fólk sem er í rugli eða óheiðarlegt. Annars hafið endilega samband.
|
 
Er ég tík? Ójá, og stolt af því!

Ég var í Are You a Bitch prófi og viti menn! Ég er hvorki meira né minna en 40% bitch og hananú! Go Girls Go!!!
|
Friday, February 21, 2003
 
Hvaða leikkona er ég?

Guð minn góður hvað ég er móðguð! Af öllum hæfileikaríku leikkonunum þurfti ég að vera litla væmna krúttið Penelope Cruz! Nú er mér allri lokið. Það er greinilega kominn tími á meiriháttar sjálfs-skoðun ef maður er kominn á þessa hættulegu braut postulínsdúkkunnar.

You're Penelope Cruz...you're special and different
but you know where you stand. You don't regret
for things past and you hold you head up
high...


What actress are you?
brought to you by Quizilla
|
 
Ryksugan á fullu...Kjaftæði!

Jæja, þá er ég loksins búin að druslast til þess að taka til og þrífa svolítið hér á heimilinu. Það er ekkert smá mikið af drasli, ryki og ló sem kemur undan tveimur einstaklingum! Annars er ég mjög staðföst í þeirri skoðun minni að húsverk eigi að hafa mjög strangar reglur þegar kemur að mismunandi hlutverkum kynjanna. Karlar eiga að skúra, þurrka af, ryksuga, sópa lauf, bóna, vaska upp, elda, gera við, skipta á rúmfötum og laga allt sem getur farið úrskeiðis. Síðan eiga þeir að skaffa vel og vera tilbúnir í slaginn í rúminu (og reyndar hvar sem er annars staðar...) þegar konunum hentar. Konur hafa það eina hlutverk að láta sér líða vel, eða þær ættu að hafa það. Eftir allar aldirnar sem við höfum mátt þjást þá er kominn tími til að syndir feðranna bitni á sonunum. Farið ekki að mínu dæmi stelpur, látið þá þræla! Ef um samkynhneigt samband er að ræða virðist eina lausnin vera að skipta hlutverkunum jafnt á milli sín. En að öðru leyti eiga karlar að þjást á heimilinu!
Nínos hefur talað!
|
Thursday, February 20, 2003
 
Stjúpbörn og Stress

Lázaro fékk sendingu frá Perú í gær. Ég var svo forvitin að það lá við að ég opnaði hana áður en hann kæmi heim. Auðvitað hélt ég aftur af mér enda má maður aldrei opna annarra manna póst, ekki einu sinni maka. Það er brot á friðhelgi einkalífsins. Það kom í ljós að þetta voru bréf og ljósmyndir af börnunum hans (stjúpbörnunum mínum! Oh my God!) þegar þau útskrifuðust úr bekkjunum sínum í fyrra. Þau eru gullfalleg enda eiga þau ekki fegurðina langt að sækja! Lázaro er svo sætur. Lázaro á sko 3 börn úr fyrri sambúð sem stóð yfir í um 14 ár. Þau voru hætt að búa saman ári áður en hann kom til Íslands bara svo það sé á hreinu að ég er EKKI neinn hjónadjöfull. Ég náttúrulega hef vitað af þessum börnum frá upphafi okkar sambands og þau eru nú ein aðal-ástæðan fyrir fyrirhugaðri ferð okkar til Perú í ágúst. Svo að hann geti hitt þau (og ég væntanlega líka) og við komið okkar málum á hreint. Ég verð nú samt að viðurkenna að það var mjög skrýtið að sjá svona nýlegar myndir af þeim. Þau eru ekkert smá stór! Ég meina, það er ferlega skrýtið að segja:,,Þetta eru nú stjúpbörnin mín," þegar þau eru á áttunda, ellefta og fjórtánda ári ! Ég meina, ég er ekki einu sinni orðin 25 ára enn þá! Vá, maður ábyrgðin! Svo fór ég líka að hugsa ýmislegt þegar ég skoðaði myndirnar. Hvað ef að mamma þeirra myndi deyja eða bara ekki vilja hugsa um þau langur? Ég meina, Lázaro sér um þau (og barnsmóður sína) fjárhagslega en hvað myndum við gera ef mamman dytti úr myndinni? Þá yrðu krakkarnir að koma hingað til Íslands og búa hjá okkur! Ekki vildi ég að þau byggju hjá afa sínum og ömmu, ég meina, þau ættu þá að vera hjá pabba sínum og mér. Ég sé mig nú samt ekki alveg í anda með 3 stjúpbörn í uppeldi sem hata mig kannski :( Jæja, maður er nú kannski að hafa áhyggjur af einhverju sem fræðilega gæti gerst en mun ekkert endilega gerast. Auðvitað er best fyrir þau að hafa mömmu sína hjá sér. En þetta segir manni það að það er gífurleg ábyrgð að hefja samband með einstakling sem á börn úr fyrra sambandi. Ef að maður elskar maka sinn þá verður maður að elska börnin hans líka. Og hananú!
|
 
Geisli frá árinu 1946 er búinn að gera Jörðina að ferðamannastað og fínni auglýsingu fyrir auðlindir
Gullmoli frá Geira frænda.
|
 
Rassgata-Menning

Jæja, það er ekkert smá langt síðan ég bloggaði síðast. Ég hef bara verið á kafi í próflestrar-stressi undanfarna viku og enginn tími hefur gefist til þess að tjá sig. Sem er auðvitað hneyksli í sjálfu sér. Ég var að skoða barnamyndir ásamt öðru fólki um daginn og heyrði þá einhvern segja:,,Guð, hvað þetta barn er mikið rassgat!" Auðvitað er þetta mjög algengt orðalag en ég hef í raun aldrei veitt því athygli fyrr en þá. Hvað í andskotanum á fólk eiginlega við? Að kalla einhvern ,,rassgat" þýðir á íslensku að viðkomandi aðili sé algjört krútt. Annars staðar í heiminum, alla vega enskumælandi heiminum, hefur orðið ,,asshole" mjög neikvæða merkingu. Ég bara skil ekkert í okkur Íslendingum að vera alltaf að kalla börnin okkar rassgöt! Mér persónulega finnst þetta í hæsta máta ósmekklegt og sé ekki neitt upphefjandi við það að vera líkt við rassgat. Hvað er svona krúttlegt við að vera líkt við endaþarm? Þetta er nú bara algjör rassgata-menning hjá okkur hérna á Íslandi.
Nínos hefur talað.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives