The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, February 14, 2003
 
SADISTAR OG SKURÐLÆKNAR

Ok. Dagurinn í dag verður að flokkast sem einn af þessum dögum sem verða ætíð eftirminnilegir í huga manns. Mamma fór í skurðaðgerð og ég var viðstödd! Þannig er mál með vexti að mamma lenti í vinnuslysi og hún er enn að takast á við afleiðingar þess. Í dag fór hún í aðgerð til þess að stytta liðböndin í ökklanum og læknirinn, Dr.Bow eins og ég kalla hann, beið með hnífinn á lofti eftir okkur. Nei, nei, það var nú ekki svo slæmt, hann hélt bara á penna svo að mamma gæti skrifað undir alls kyns skjöl. Mamma er nú eins og flestir í okkar fjölskyldu, með lækna- og spítalafóbíu á mjög háu stigi. Þó ekki eins háu stigi og Lázaro en ég get bara ekki skrifað um hans fóbíur, það er bara of vandræðalegt því þær eru svo margar! Mamma greyið þurfti að taka á honum stóra sínum til þess að fara í þessa aðgerð og þó er hún búin að fara í gegnum sama ferlið á hinum fætinum áður. Sökum þessarar miklu vanlíðunar fékk ég sérstakt leyfi til þess að vera viðstödd aðgerðina svo að mínir yndislegu straumar myndu gefa mömmu styrk og stuðning. Það var magnað að sjá Dr. Bow munda hnífinn og skera í holdið. Ég las einu sinni að hlutfall sadista væri óvenjuhátt á meðal skurðlækna. Það ætti að útskýra hvernig þeir afbera það að vera stöðugt að skera í holdið á lifandi fólki. Þessi iðja brýtur algjörlega í bóg við allt það sem eðlilegt getur talist. Þegar svæfingarlæknirinn var búinn að dópa mömmu nógu mikið til þess að hún teldist vera sofandi, skar Dr.Bow í ökklann og smá blóð byrjaði að veitla úr skurðinum. Þegar hann skar í byrjaði mamma að SPARKA, mér til mikillar skelfingar, enda hélt ég að tilgangurinn með svæfingunni væri sá að fólk væri SOFANDI og finndi ekki til sársauka! En læknarnir tóku þessum spörkum með stóískri ró og svæfingalæknirinn bætti bara á lyfjaskammtinn og kippti þessum kippum í liðinn! Það er svolítið skrýtið að sjá svona skorið í lifandi manneskju en ég er svo heppin að vera ekki haldin neinni klígju í sambandi við slíkt og horfði því á þetta með athygli. Ég ætla að vona að þessi skortur minn á "oj, hvað þetta er ógeðslegt!"-geninu þýði ekki að ég sé innst inni sadisti sem þrái ekkert heitar en að skera og pynta fólk! Annars gekk allt vel og Dr.Bow á heiður skilinn fyrir að skjót og góð vinnubrögð. Einnig ber að þakka svæfingalækninum fyrir sinn hlut að máli og ekki síst ber að þakka englinum í hjúkku-dulargervi sem var einstaklega þolinmóð og innileg í öllu þessu ferli. Það er þörf á svona fólki eins og henni í heilbrigðisgeirann. Fólki sem kann sig í mannlegum samskiptum og tekur tillit til þeirra sem eru viðkvæmir fyrir því að láta kukla við líkama sinn með hnífum.
Nínos hefur talað.
|
Thursday, February 13, 2003
 
ATHYGLISSJÚKAR ANTI-KENNARASLEIKJUR DAUÐANS!

Það er sko vægast sagt að hellast yfir mig próf-stress. Ég er við það að hefja miðsvetrarpróf í Háskólanum og mér líst ekki á blikuna. Það er sérstaklega Breskar bókmenntir II sem ég hef áhyggjur af. Þessi Bjólfskviða og Arthur og riddararnir, þetta bara ruglast allt í kollinum á mér! Síðan er ég að reyna að klára The House of the Seven Gables fyrir kúrs hjá Evu Heisler, sem ég er í um áhrif ljósmynda á 19. aldar amerískar bókmenntir. Reyndar er það mjög áhugaverður kúrs. Ég dýrka svona bókmenntafræðilegt flæði. Svo er líka eitthvað svo mikil ró yfir þessum kúrs hjá henni Evu Heisler, eins og reyndar alltaf hjá henni. Kannski er það af því að þeir eru kenndir svo seint á daginn, þá eru ekki svona miklir straumar áreitis í Háskólanum eins og eru fyrr á daginn þegar allt er fullt af fólki. 'Eg bara þoli ekki að koma þangað snemma eða um hádegi. Þá er allt fullt, engin bílastæði og ég alltaf á seinustu stundu enda á ég mjög erfitt með að vakna. Jafnvel þótt að ég byrji aldrei fyrr en 12:15! 'Eg er sko ein af þeim sem þarf minn fegurðarblund og það dágóðan takk fyrir! Stundum get ég orðið alveg vitlaus á Háskólanum. Það er svo mikið af ótrúlega pirrandi fólki þar. Sérstaklega pirrandi einstaklingar eru það sem ég kalla athyglissjúkar anti-kennarasleikjur. Þetta er alveg sér gerð af fólki sem þyrfti að leita uppi á skipulagðan hátt og útrýma úr kennslustofum um allt land. Leyfið mér að lýsa þessu aðeins nánar. Venjuleg kennarasleikja er fyrirbæri sem við könnumst öll við og þekkjum mjög fljótt og ef við höfum einhvern þroska þá vorkennum við þeim bara, enda aumkunarverður kynstofn sem kennararnir þekkja yfirleitt mjög auðveldlega úr og sjá í gegnum. En athyglissjúk anti-kennarasleikja er stórhættulegt kvikindi sem hefur mannskemmandi áhrif hvar sem það þrífst. Til þess að geta flokkast sem athyglissjúk anti-kennarasleikja þá þarf einstaklingurinn fyrst að vera athyglissjúkur. Þessi athyglissýki brýst iðulega fram með stöðugum truflunum í tíma. Endalausar spurningar sem trufla kennarann við fyrirlestra-flutning hvað eftir annað. Í öðru lagi þarf einstaklingurinn að vera með mikilmennskubrjálæði sem lýsir sér í því að hann/hún heldur að hann/hún viti alltaf allt betur heldur en allir aðrir, að kennururm meðtöldum. Þessi þráhyggja veldur því að einstaklingurinn er anti-kennarasleikja því hann/hún reynir ekki endilega að komast í mjúkinn hjá kennaranum með því að þóknast honum í skoðunum sínum heldur reynir að vekja aðdáun kennarans (sem betur fer oftast með öfugum árangri) með því að þykjast vera sjálfstæður í hugsun. 'Eg legg áherslu á ,,þykist" vera sjálfstæður í hugsun því að sönn athyglissjúk anti-kennarasleikja er ALDREI í alvöru sjálstæð í hugsun. Flestar hugmyndir þessara ólánsömu einstaklinga koma aftan af kilju bóka sem þeir þykjast hafa lesið. Þetta fólk reynir oft eftir fremsta megni að ANDMÆLA kennaranum til þess að hefja sjálft sig upp á stall í augum annarra. Það virðist samt sem áður ekki hafa nein letjandi áhrif þótt að heimskulegar athugasemdir þessara kvikinda séu marg-kveðnar í kútinn af kennurum og sam-nemendum. Þau gefast aldrei upp! Í þriðja lagi þá hafa þessi kvikindi sérstakt dálæti á því að brjóta niður aðra nemendur og koma þeim í vandræði þegar þeir eiga að halda fyrirlestra fyrir framan bekkinn. Örugg leið til þess að bera kennsl á athyglissjúka anti-kennarasleikju er að fylgjast með fyrirlestrum annarra nemenda sem þú ert með í kúrsum. Í lok fyrirlestursins spyr kennarinn oftast nokkurra spurninga og síðan má búast við að nemendur geri slíkt hið sama. En athyglissjúkar anti-kennarasleikjur þekkjast á því að þær spyrja ALLTAF spurninga, sama hvort þær vita baun um efnið eða ekki. Þessi kvikindi eru að gera þrennt með þessu: 1)þykjast vera gáfuð (sem þau eru í raun EKKI) og vekja ATHYGLI á sér og 2)reyna að sleikja sig upp við kennarann og 3)gera lítið úr öðru fólki til þess að upphefja sjálfan sig. Nú er ég alls ekki að segja að allt fólk sem vogar sér að opna munninn í tímum tilheyri þessum flokki. Það er sífelld endurtekning spurninga og þá sérstaklega spurninga sem koma ekki kennsluefninu í raun við sem koma upp um það og þetta fólk bíður færis til að gera lítið úr öðrum og þeirra skoðunum. Þið vitið alveg hvað ég er að tala um. Ég segi bara: Til andskotans með svona pakk! Það er stórkostlegt þegar maður hefur kennara sem kunna að stoppa svona lið af (alltof margir kennarar leyfa því að ganga alltof langt og stela alltof miklum tíma frá öðrum) og mér finnst að það eigi að sitja sérstakan kúrs í alla kennslufræði þar sem tilvonandi kennurum er kennt að höndla svona lýð. Og HANAN'U! Nínos hefur talað.
|
Wednesday, February 12, 2003
 
AFMÆLIS-OFDEKUR

Jæja, þá er síðari dagur afmælismaraþons Lázaro hafinn. Hann á nefnilega afmæli tvo daga í röð. Þetta er sko ekkert smá erfitt fyrir mig. 'Eg meina, maður þarf bara að vera með pakka og uppistand og vesen ekki í einn dag heldur tvo!! Afhverju tvöfalt afmæli spyrjið þið kannski? Jú, Lázaro fæddist 11.febrúar en pabbi hans gleymdi að fara og láta skrá hann og fá fæðingarvottorð. Hann gerði það ekki fyrr en daginn eftir og í Perú eru reglurnar þannig að ef þú skráir nýbura ekki sama dag og hann fæðist þá þarftu að borga sekt. Pabbi Lázaro, hann José (blessuð sé minning hans), ætlaði nú ekki að fara að borga þessa sekt svo hann sagði bara að Lázaro hefði fæðst þann 12.feb. Þess vegna segir fæðingarvottorðið hans 12. en raunverulegur fæðingardagur er 11.feb. Þessi útsmogna níska í gamla manninum gerir okkur hinum nú í dag lífið leitt þar sem við sitjum uppi með algjörlega ofdekraðan mann sem heimtar pakka, tertur og veislur tvo daga í röð!! Annars höfðum við það bara notalegt og rómantískt saman tvö í gær enda var ég með þvílíkt plan til þess að gera kvöldið ,,eftirminnilegt".....he, he. Nú er bara vandamálið....hvað á ég að gera í sambandi við kvöldið í kvöld??? :þ
|
Sunday, February 09, 2003
 
KARLA-UPPELDI
Jæja, þá er enn ein vaktin á 118 að hefjast. Það er nú frekar rólegt hérna svona á sunnudögum þannig að mér líður bara frekar vel. Ég er ekkert smávegis stolt af sjálfri mér. Ég held að ég sé með snilligáfu í karla-uppeldi. Ég sver það, þetta er ótrúlegt! Áður en ég fór í vinnuna áðan þá útbjó Senor Karlremba Nunez NESTI handa mér og hellti Sinalco á glerflösku svo ég gæti haft þetta með mér í vinnuna!!! Ykkur sem eigið rosalega upplýsta og feminíska maka finnst þetta kannski ekki mikið en í mínum bókum er þetta gífurleg framför. Eins og sagan segir þá eru karlar frá S-Ameríku ekki þeir jafnréttis-sinnuðu í hugsun og því finnst mér þetta alveg stórkostlegt, sérstaklega með tilliti til þess að það er ekki nóg með að Lázaro hafi útbúið nesti handa mér, hann er núna á þessari stundu, heima að taka til og þrífa!!! Og ég bað hann ekki einu sinni um það! Þetta segir okkur einfaldlega það að það er aldrei of seint að kenna gömlum hundi að sitja og því er að sama skapi aldrei of seint að gera karlrembu að femínista. Ok, nú gekk ég of langt, kannski ekki alveg að femínista en að minnsta kosti að vægari karlrembu! Því segi ég hér og nú GO GIRLS GO!!!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives