The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, February 08, 2003
 
SPÆNSKA A LA NINOS KVARANITA
Hey, vel á minnst! Gleymdi ég ekki alveg að minnast á hvernig fór með hinn fræga spænskufyrirlestur sem ég hélt á dögunum? Á miðvikudaginn hélt ég semsagt fyrirlestur á spænsku fyrir framan allann bekkinn og ég var líka fyrst! Ég held að þetta hafi bara gengið mjög vel. Ég var þokkalega stressuð þó. Ekki að halda sjálfan fyrirlesturinn af því ég las hann bara af blaði. Ég var hrædd við mögulegar spurningar sem kæmu í kjölfarið. Kennarinn spurði líka nokkurra spurninga í lokin en sem betur fer skildi ég þær og gat bablað einhver svör. Ég talaði um Lázaro og Perú og inka-uppruna hans og indíána-tungumálið sem hans fólk talaði og talar enn sum staðar, Quechua. Annars kann ég nú ekkert í því tungumáli en hér er lífsnauðsynlegur orðaforði fyrir þá sem vilja bjarga sér í spænskumælandi landi:

Yo me llamo ...= Ég heiti....
Como te llamas? = Hvað heitir þú?
Quiero cachar = Ég vil ríða
Quieres cachar?= Langar þig að ríða?
pinga = typpi
concha = píka
trasero = rass
kulo = rass
tetas = túttur
te amo = ég elska þig
me amas? = elskar þú mig?
|
 
RAUÐAR RÓSIR OG MEXÍKÓ-MATUR
Jæja, þá er maður búinn að mála bæinn rauðann eina ferðina enn. Ég átti nú að vera að vinna í gær en fékk blessunina hana Selmu til þess að leysa mig af. Kærar þakkir Selma! Þannig vill nú til að ég er að læra spænsku fyrir byrjendur í Háskólanum, eins og þið vitið kannski sem hafið lesið mitt hógværa blogg áður.Kennarinn minn, Andrés Ramón frá Kolómbíu, sagði okkur í bekknum að kíkja endilega á Vegamót vegna þess að það yrði lifandi tónlist frá Argentínu og mexíkóskur matur. Ég vildi endilega fara og við skelltum okkur 3 saman, ég, Lázaro og vinkona mín frá Sri Lanka, hún Auri. Ég hef bara aldrei lent í öðru eins, það störðu allir svo mikið á okkur! Kannski var það vegna þess að við erum svona ólík í útliti eða kannski voru það fötin sem við Auri vorum í. Þarna var ég, 24 ára, með sítt, ljóst hár, ógeðslega hvíta húð og í skærappelsínugulum indverskum kjól og með risastóra rauða rós í hárinu og eldrauðan varalit. Síðan kom Lázaro, 44 ára, indíáni í húð og hár með rauðbrúna húð. Að lokum kom síðan Auri, 60 ára (lítur út fyrir að vera 10 árum yngri) með kolsvart hár niður á rass, dökkbrúna húð, í mosagrænum fötum frá Sri Lanka og með tvö bleik blóm í hárinu. Við höfum verið þarna eins og einhver regnbogabörn eða eitthvað! Fulltrúar frá Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku bara mættir á svæðið. Ég sver það, það var óþægilegt hvað var starað mikið á okkur. En það var rosalega gaman þarna. Bróðir Andrésar var að spila á gítar ásamt öðrum náunga og mér fannst tónlistin mjög fín þó að Lázaro fyndist hún hálf-þunglyndisleg. En maturinn sló mann nú alveg útaf laginu. Ég vildi að ég væri enn þá þarna að borða. Þvílíkt lostæti!!!! Ég hef bara aldrei smakkað svona góðan mesíkóskan mat! Við fengum risastóran disk sem við deildum saman, það voru ostafyllt nachos, barbeque-kjúklingur, og fullt af öðrum girnilegum réttum sem ég man ekki hvað hétu. Ég verð að hvetja alla til þess að skella sér á Vegamót og smakka þennan mat. Það er víst boðið uppá hann á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum.
|
Thursday, February 06, 2003
 
PRUMPAÐ Í PERÚ
Uppskrift að baunum og fl.


Jæja, núna fór ég alveg með mig. Þið vitið það kannski sum en það að vera í sambandi krefst alltaf ákveðinna málamiðlana. Í mínu tilviki er eldamennska áþján sem ég sit uppi með sökum þess að Lázaro kann ekki einu sinni að sjóða egg (og er líka latínó-karlremba) en ég kann nú að elda svona venjulegan mat. Í gær ákvað ég að slá í gegn og elda virkilega flottan mat. Fyrir valinu varð réttur frá Perú sem systir hans Lázaro sem býr hérna á 'Islandi, kenndi mér að elda. Hann samanstendur af baunum (ég var með grænar linsubaunir núna en mér finnst stóru smjörbaunirnar hvítu miklu betri), steiktu hakki og grænmeti og hrísgrjónum. Ég ákvað meira að segja að gera salat (sem ég lærði hjá vinkonu minni frá Sri Lanka) og svona kalda indverska jógúrtsósu með hvítlauk og fleira gúmmelaði. Ekki þrætti ég fyrir það að maturinn var ógeðslega góður, þó að ég segi sjálf frá, en litlu mátti muna að ég kæmist ekki lifandi frá eldamennskunni. Mér tókst að skera af mér nöglina (já, nöglin á litla fingri fór að hluta til af ! ), brenna gat í gegnum svuntuna sem ég var með og setja svo mikinn hvítlauk útí jógúrtið að ég logaði öll að innan eftir smá smakk. Sem betur fer átti ég aðra dollu af jógúrti og bætti henni útí og það mildaði bragðið þó að sósan hafi samt tekið í. Ég segi bara eins og er: I'm an artist!!! Not a house-slave!!! Ég var bara ekki sköpuð til þess að standa í hús-og heimilisverkum eða eldamennsku. Ég er bara alltof viðkvæmur einstaklingur fyrir svoleiðis óþarfa. Þetta er bara lífshættulegt. Það er satt. En fyrir þá sem vilja uppskriftina að mat frá Perú með indversku salati þá skrifa ég hana hér:
Rétturinn frá Perú:
Fyrir 4-6 manns (eða ég held það)
ca. 500 gr. ferskt ungnautahakk
2-3 bollar hrísgrjón
2hvítlauksrif
1 græn papríka
1 rauð paprika
1 laukur
1 lítill brokkóli haus
nokkrir sveppir (ég bætti þeim við í uppskriftina því ég elska sveppi. Lifi Palli sveppur!)
3-4 tómatar
500 gr. baunir (ekki ORA dósabaunir, alvöru, óeldaðar baunir, stórar, hvítar smjörbaunir eru bestar, fást í Hagkaup Kringlunni)
Krydd: Kúmen, pipar, salt (og ég nota líka Season All og karrý)

Hrísgrjónin: Setjið smá olíu í pottinn. Skerið niður í pínulitla bita eða merjið ca.2 hvítlauksrif og steikið þau í olíunni þangað til þau eru orðin fallega brún. Notið svona 3 bolla (þá meina ég stóra bolla) af hrísgrjónum. Skolið hrísgrjónin fyrst (já, maður á að hreinsa þau eins og maður gerir við ávexti og grænmeti) og setjið þau í pottinn ásamt vatni, ca. tvisvar sinnum meira vatn en grjón. Fyrir þá sem eru mathematically challenged eins og ég, þá á ég við 1 bolli hrísgrjón fær ca. 2 bolla af vatni á móti sér. Munið bara að það er betra að setja minna en meira vatn ef þið viljið ekki að grjónin verði að klessu. Það má alltaf bæta við vatni en verra er að fjarlægja það :þ Setjið örlítið salt útí og ef þið viljið hafa grjónin fallega gul á litinn, sem er ágætis-tilbreyting, þá má setja soldið karrý í vatnið. Látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann. Grjónin þurfa svona a.m.k. 20 mín. ef ekki 30. Þegar suðan er komin upp er gott að setja pottlokið á til þess að halda gufunni að grjónunum.

Baunirnar: Látið baunirnar liggja í vatni yfir nótt eða a.m.k. í 7 klst. nema þið viljið fá heiftarlega vindverki dauðans (þetta þarf ekki að gera við linsubaunir). Skiptið svo um vatn á baununum. Vatnið á að ná vel yfir baunirnar. Látið suðuna koma upp og leyfið þeim síðan að malla í 1 1/2 -2 tíma. Bætið smá slettu af olíu, kryddið með salti og pipar eftir þörfum og smekk. Setjið 2-3 teskeiðar af kúmeni útí vatnið. Það er ómissandi uppá bragðið að gera. Mér finnst alveg frábær bragðauki að setja slatta af karrý útí líka, en það hentar kannski ekki öllum, ég er svo mikið karrý-frík. Þegar vatnið er orðið að nokkuð þykkri sósu eru baunirnar vanalega tilbúnar, mjúkar og fínar.

Kjötið: Setjið hakkið á stóra pönnu og steikið vel í gegn. Það er óþarfi að setja olíu eða aðra feiti á pönnuna, það er nóg fita í kjötinu sjálfu. Kryddið með salti og pipar eftir þörfum. Ég krydda líka með Season All ( athugið að það er ekki þriðja kryddið í því svo það er ekki svo óhollt) en ég er algjört Season All-frík. Þegar kjötið er orðið vel steikt er það fjarlægt af pönnunni og geymt í skál á meðan pannan er notuð til að steikja grænmetið.

Grænmetið og kjötið: Skerið brokkóli, paprikur, lauk, tómata og sveppi niður mjög gróft. Skellið á pönnuna sem kjötið var á og steikið þar til brokkólið er orðið mjúkt í gegn. Munið að geyma tómatana. Ekki steikja þá strax því þá verða þeir orðnir að mauki þegar maturinn er tilbúinn. Þegar hitt grænmetið er orðið mjúkt og gott skulið þið taka kjötið úr skálinni þar sem þið settuð það áður og bæta því við grænmetið á pönnuninni. Núna skal líka bæta við tómötunum. Hrærið þessu saman og steikið í smástund lengur eða þar til tómatarnir eru orðnir heitir í gegn. Það flýtir fyrir að loka pönnunni í nokkrar mínútur. Þá er maturinn tilbúinn!

Indverska salatið og kalda jógúrtsósan:
Kínakál eða eitthvað svipað grænt kál
ca. hálf agúrka
hálfur laukur
soldið sellerí
steinselja
ferskt dill (ekki þurrt úr dós).
2 litlar dollur af hreinu jógúrti
ca. 1-2 rif hvítlaukur
sítróna (ef þið viljið)
smá salt (ef þið viljið)

Salatið: Grófskerið kálið og agúrkuna. Fínskerið selleríið, steinseljuna, laukinn. Bætið dilli útí eftir smekk. Hrærið öllu vel saman. Til bragðauka má kreista smá sítrónu og strá örlitlu salti yfir allt heila klabbið. Gefur aukið bragð og ferskleika.

Jógúrtsósan: Setjið jógúrtina í skál. Merjið hvítlaukinn (EKKI of mikinn, trúið mér það er viðbjóður) og bætið honum útí. Smáskerið örlítið af lauk og agúrku og bætið við. Mér persónulega finnst voða gott að setja líka steinselju útí. Hún gefur svo æðislegt bragð. Hrærið öllu saman og þá er þetta tilbúið.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!!!!
|
Monday, February 03, 2003
 
LYGARAR OG TRYGGINGAFÉLÖG

Ok. Ég ætlaði að hætta að kvarta en ég geri það samt ekki. Ég hef þetta bara stutt og laggott: Mikið djö..er ömurlegt þegar fólk lýgur þegar það ætti að segja satt. Sérstaklega þegar það er að ljúga til þess að spara sjálfu sér smá pening. Lázaro lenti í árekstri, það var keyrt á hann á hjólandi. Engin voru vitnin og engin lögga kölluð á svæðið. Við gáfum skýrslu hjá V'IS og einnig eigandi bílsins. Ég nenni ekki að útskýra þetta í smáatriðum en maðurinn hreinlega laug ýmsu um hvernig þetta átti sér stað og sagði meðal annars að Lázaro hefði hjólað í burtu. Á hjóli sem er með svo beyglaða framgjörð eftir þennan árekstur að maður kæmist ekki meterinn á því. Það er með ólíkindum að fólk skuli alltaf vera að firra sig allri ábyrgð í stað þess að haga sér sómasamlega og viðurkenna sekt sína og vera ekki að ljúga upp á annað fólk. Hann sagði að Lázaro hefði hjólað á röngum vegahelming! Ég bara spyr: Hvaða helvítis vegahelming? Þetta gerist í innkeyrslu sem maðurinn var að keyra út af og Lázaro að hjóla þvert yfir (hann var á gangstéttinni)! Ef svo ólíklega vilji til að þessi maður muni einhvern tímann lesa bloggið mitt þá vil ég bara segja: Þú veist hver þú ert og ég vona að þú sért ánægður með sjálfan þig. Mundu bara að alltaf þegar maður breytir ekki rétt þá fær maður það í hausinn seinna. Gangi þér svo vel í lífinu.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives