The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, February 01, 2003
 
SJÁLFVIRKIR SÍMSVARAR DAUÐANS

Ég hef verið í svo miklu kvörtunarstuði upp á síðkastið að það er með ólíkundum. Nýjasta nýtt sem ég hef orðið óþyrmilega fyrir barðinu á eru svona sjálfvirkar símaþjónustur. Þið vitið hvað ég meina. Maður hringir í eitthvað fyrirtæki og lendir í frumskógi valmöguleika, lyftutónlistar og vélrænna radda sem segja manni að því miður séu allir þjónustufulltrúar uppteknir. Ég hringdi um daginn í Iceland Express og þurfti nauðsynlega að tala við lifandi manneskju af því að ég gerði herfileg mistök þegar ég reyndi að bóka flug á netinu. Viti menn, hið ótrúlega gerðist og LIFANDI vera svaraði mér glöð í bragði. Ég átti ekki til orð yfir heppni minni af því að ég veit hvernig það er að ná sambandi við svona vinsælt fyrirtæki. Ég byrjað að segja henni:,,Geturðu nokkuð hjálpað mér, ég lenti nefnil...." Áður en ég komst lengra sagði stúlkan:,,Afsakið, viltu hinkra augnablik." Síðan fór af stað viðbjóðsleg tónlist sem var stöðvuð hvað eftir annað af vélrænni rödd sem sagði:,,Því miður eru allir þjónustufulltrúar uppteknir, vinsamlega bla, bla BLABLABLA!!!! AAARRRRGGG!!!!!" 'Eg náði í lifandi manneskju og hún setti mig á f---ing bið þar sem ,,augnablikið" varð að 45 mínútum sem enduðu loks á því að vélræna röddin sagði mér að Iceland Express lokaði kl.17:00 en ég gæti farið á netið og kynnt mér allt þar! Þá var ég semsagt búin að vera á bið frá kl.17:00-17:45 algjörlega til einskis, hlustandi á sömu vélröddina biðja mig um að bíða aðeins þar sem allir þjónustufulltrúar væru uppteknir. Þeir voru ekki uppteknir. Þeir voru bara löngu farnir heim!!! Mér finnst með ólíkindum að það sé hægt að fara svona með fólk. Af hverju setti þessi manneskja mig á bið þegar hún vissi að þau voru að loka? Af hverju breyttist símsvarinn ekki fyrr en eftir 45 mínútur? Það hefði sparað mér tímann ef símsvarinn hefði strax sagt mér að þau lokuðu kl.17:00. Ég grenjaði næstum því að reiði. Eins og ég sagði áður þá var mjög mikilvægt fyrir mig að tala við þetta fólk, annars hefði ég aldrei beðið svona lengi. Síðan nokkrum dögum síðar lenti ég nákvæmlega í því sama þegar ég hringdi á Skattinn. Kona svaraði mér, ég sagðist hafa fyrirspurn um launaseðil. Hún sagðist gefa mér samband við tollinn (don't ask me why), þar svaraði önnur kona. 'Eg endutók sögu mína og hún sagðist gefa mér samband við þjónustuverið. Þar var síðan bara spiluð tónlist sem var af og til rofin af vélrödd sem sagði mér að allir væru uppteknir. Eftir 15 mín. fattaði ég að kl. var orðin 16:00 og því örugglega lokað hjá þeim. Ég skellti á brjáluð af reiði. Mér finnst það sé lágmarkskrafa að starfsfólk sem vinnur við slík störf viti hvert það er að gefa manni samband og sé ekki að gefa manni samband við staði sem eru lokaðir! Það bullar bullar og vellur á mér að hugsa um þetta! Þetta eru barasta nútíma-pyntingar á saklausu fólki og þjófnaður dýrmætum tíma og peningum líka. Niður með sjálfvirka símsvara!!!
|
Thursday, January 30, 2003
 
RASSASLEIKJUR Á VINNUSTÖÐUM

Mikið ofboðslega getur sumt fólk verið pirrandi! Þið vitið hvað ég er að tala um. Ég er að meina svona samstarfsfólk sem er alltaf að þykjast vera betra en allir aðrir. Þegar ég var að vinna á 'Islandspósti (þvílíkur vinnustaður...mesta samansafn af furðufuglum og utangarðsmönnum sem ég hef nokkurn tíma kynnst að undanskildum nokkrum ágætum einstaklingum) þá var einn tiltekinn ,,samstarfsmaður", (ég nefni að sjálfsögðu engin nöfn þar sem ég læt duga að niðurlægja bara mig sjálfa og þá sem eru svo óheppnir að vera mínir nánustu á þessu bloggi) sem var að gera okkur hin alveg vitlaus. Þessi ,,einstaklingur" var alger naðra, alltaf að tala illa um fólk og bera það út en sleikti sig svo upp við yfirmennina alveg á fullu spani með tunguna í súkkulaðinu. Þessi ,,starfsmaður" fór alltaf nokkrum mínútum á eftir öllum í pásu, til að sýnast vera að vinna lengur en við hin. Síðan brást það ekki að þegar 5 mín. voru EFTIR af pásunni, þá stóð þessi tiltekni starfskraftur upp og hélt til vinnu og við hin sátum enn inní kaffstofu og fengum samviskubit yfir því að voga okkar að taka yfirhöfuð pásu og fengum illt auga frá yfirmönnunum sem dáðust að umræddum starfsmanni. Djöfull er svona fólk ógeðslega pirrandi! Þetta er sko ekki nein helv. vinnusemi heldur bara SUCK-ASS-PUTTING-UR-TUNG-IN-BOSS'-CRACK-DAUÐANS!!! Þessi starfskraftur liðinna daga minna á Íslandspósti var síðan í raun svo ónýtur til vinnu að vinnuhraði hans hefði gert skaldbökur og snigla með hraðskreiðustu dýrum í samanburði! Ég þoli ekki svona fals og sleikjuskap við yfirmenn. Maður á að sýna yfirmönnum sínum þá virðingu að vera ekki að leika einhverja skrípaleiki til þess að reyna að ganga í augun á þeim. Það er bara hreinn viðbjóður.
Nínos hefur talað.
|
Wednesday, January 29, 2003
 

Fjöldamóðursýki gripin um sig um allan heim? - Fréttir erlendis frá berast af geimskipum sem sögð eru sjást um allt!
Gullmoli frá Geira frænda.

|
 
PRÓFLESTUR OG TYPPI

'I dag er ég glöð, í dag er ég í góðu stuði. Ég var að reyna að læra fyrir yfirvofandi spænskupróf (nánar tiltekið scheduled on next Friday) í gærkvöldi og var bara komin með tárin í augun yfir öllu þessu. Lázaro var alltof strangur við mig þegar ég reyndi að þylja upp allar sagnirnar (sko í nútíð, þátíð, núliðinni tíð, lýsingarhætti nútíðar og viðtengingarhætti !) og ég var bara að því koma að brotna niður andlega og segja Lázaro bara að fjölskyldan hans í Perú (sem ég mun væntanlega hitta í fyrsta skipti núna í ágúst) gæti bara lært íslensku eða ensku eða eitthvað áður en ég kæmi. Síðan sofnaði ég með grátbólgin augun (ok. ekki kannski alveg grátbólgin) og fannst ég vera ógeðslega vitlaus. Í spænskutíma í dag tilkynnti síðan kennarinn, hinn frábæri Andrés Ramón frá Kólumbíu, að þetta yrði heimapróf! Jibbíjei!! Þá þarf ég ekki að að sitja sveitt í tíma og reyna að leysa þetta spænskuþvaður....
Lázaro og ég höfum undanfarið skemmt okkur við að horfa á Guiness Book of Records á Skjá 1. Lázaro er mjög ósáttur við þennan þátt þar sem hann heldur því fram að stærsta typpi heims (mannlegt á ég við) sé í Perú. Það er einhver risavaxinn náungi (þá meina ég mjög hávaxinn og vel vaxinn niður) sem heitir Margarito (held ég) sem er með 45 cm. Getur þetta staðist ég bara spyr? Og eiginkona umrædds trölls er ekki nema 150 cm á hæð! Ég veit ekki hvernig þau fara að en neyðin kennir víst naktri konu að spinna og......? Alla veganna þá vill Lázaro að þessi maður fái að koma f´ram í þættinum og það strax! Hann segir líka að það hafi verið frægt í Perú þegar þeir fundu einhvern 4 ára strák sem var með 20 cm reður hangandi framan á sér. (Hvernig ætli hann verði þegar hann verður ,,stór" ?) Litla greyið gat víst ekki gengið uppréttur vegna þungans af hinu stórbrotna líffæri og var alltaf að detta fram fyrir sig. Svona á nú sumt fólk ofsalega bágt!
|
Tuesday, January 28, 2003
 
Hefurðu heyrt um klukkuna sem þurfti að fara til sálfræðings? Sálfræðingurinn komst að því að hún þjáðist af stundarbrjálæði!!!
Gullmoli frá Geira frænda.
|
 
VEGABRÉF OG VERGIRNI SIMPANSA

Þá erum við Lázaro loks búin að finna leigjanda að íbúðinni hans. Það er 23 ára stelpa með 2 lítil börn. Hún flyst inn núna um helgina. 'Eg er ekkert smá fegin. Þetta var orðið svolítið þreytandi að leita svona að leigjanda. Það er ekkert smá skrýtið fólk sem er búið að koma og skoða íbúðina. Við vorum sko með strák sem sveik allt og stakk svo bara af. Hann límdi lyklana bara utaná hurðina og fór. Skildi íbúðina eftir í rúst. Það var rosalegt sjokk að sjá íbúðina og enn meira vesen að láta laga hana. Jæja, nóg um það. Ég vona bara að þetta verði allt í lagi í þetta skiptið. Hey, by the way...við erum búin að kaupa flugmiða til Perú. Við förum næsta ágúst. Ég er að fara á taugum nú þegar. Ég hitti loksins fjölskylduna hans Lázaro í fyrsta skipti (fyrir utan systur hans sem býr hér á landi). Ég hlakka ekkert smá til samt þótt ég sé stressuð. Ég hringdi í bandaríska sendiráðið og komst að því mér til mikillar furðu að það er ekki nóg með að Lázaro þurfi vegabréfsáritun til að skipta um flug í New York, ég þarf hana líka! Ég sem hélt að mitt háheilaga íslenska vegabréf væri algilt alsstaðar! Neihei! Þegar ég kem frá 'Islandi og fer til New York gildir það, en þegar ég kem aftur til New York frá Perú þá verð ég að hafa áritun. Mér var sagt að margir Íslendingar á ári lendi í því að fá sér ekki áritun hjá bandaríska sendiráðinu, fari til S-Ameríku en séu svo sendir þangað aftur til þegar þeir millilenda í Bandaríkjunum. Eins gott að hafa þetta allt á hreinu ég segi það bara! Annars komst ég að því að simpansar eru með eindæmum lauslátir. Þeir eru félagsdýr og lifa í hópum með mjög ákveðna goggunarröð þar sem alfa-karldýrið stýrir öllu genginu. Hann gengur um og er voða stoltur af öllum sætu litlu afkvæmunum sem hann náttúrulega geriri ráð fyrir að séu sín eigin. Vísindamenn gerðu blóðrannsóknir á mörgum simpansa-fjölskyldum og viti menn. Greyið eiginmaðurinn (eða eiginapinn) á ekki nema um 50% allra afkvæmanna. Þá kom loks skýring á því af hverju simpönsurnar eiga það til að bregða sér svo lítið beri á í burtu og hverfa inní rjóðrið og snúa stundum ekki aftur fyrr en eftir nokkra daga! Þær eru þá að fara á svona stúlknakvöld í frumskóginum með karl-strippurum sem stjana við þær á alla mögulega vegu....Mér finnst þetta bara gott hjá þeim. Af hverju ætti alfa-karlinn að vera einn um allar þessar kvensur en þær hafa bara hann til þess að deila með sér? Það er bara ekki sanngjarnt! Go Girls Go!!! GIRL-POWER!!
|
 
ROTIN LÍK OG ÞORRABLÓT

Ég varð ógeðslega veik á að borða þessi viðbjóðslegu bjúgu. Aldrei aftur segi ég!! Djöfull er þessi íslenski matur, þar á meðal allt þorra-dæmið, ógeðslegt. Það er bara mesta furða að fólk skuli hafa lifað það af að borða þennan ósóma í gegnum aldirnar. Ég smakkaði kæstan hákarl einu sinni og ekki beðið þess bætur. Þetta var svona eins og að fá sér vænan bita af hráu líki sem hefur rotnað upp við ofn í dágóðan tíma. Mér datt þetta nú bara í hug af því að maður sem ég þekki gekk í lögguna og eitt af fyrstu útköllunum sem hann fékk var vegna óþefjar sem kom úr íbúð í blokk. Þeir brutust á endanum inn og fundu þá húsráðanda dauðann, sitjandi upp við ofninn í stofunni hjá sér. Hann hafði drukkið sig í hel blessaður maðurinn og hitinn á ofninum ,,hjálpaði" til við rotnunarferlið sem orsakaði hina mjög svo sterku lykt. Sorgleg saga.
|
Monday, January 27, 2003
 
BJÚGA EÐA TYPPI ?

Jæja, þá er maður búin að borða yfir sig einu sinni enn. Var í mat hjá mömmu. Við borðuðum bjúgu sem er ekki í frásögur færandi nema það að ég laug að Lázaro að þetta væru typpi. He, he....
|
 
VAÐIÐ ÚR EINU Í ANNAÐ

Ég er sko algjörlega búin á líkama og sál! Ég var að vinna um helgina og það er svolítið þreytandi að þurfa að læra í öllum pásum. Ég tók frí á sunnudag til þess að hjálpa J. vinkonu að flytja. Hún er að flytja í sama hús og ég! Það verður frábært. VIð vorum mjög mörg að hjálpa henni og þetta skotgekk. Myndi samt varla nenna þessu aftur. Ég held að ég geti aldrei flutt. það er alltof mikið mál. Ég var eiginlega svona bara verkstjóri og skipaði 6 karlmönnum fyrir verkum.Mikið var það skemmtileg reynsla. Ég og Lázaro fórum svo í mat til Sigrúnar Katrínar vinkonu í Kópavoginn. Það var voða næs. Við skoðuðum albúmið hennar frá þjóðhátíð í Eyjum og sáum myndir af fólki sem rann berrassað niður brekkurnar í rigningu og þvílíku stuði. Lázaro stóð nú ekki á sama enda hafði honum verið sagt (notabene:L. er frá Perú svo hann þekkir ekki þessar yndislegu íslensku hefðir) að útihátíðir hér á landi væru bara Sódóma og Gomórra all over again. Ég meina það! Þvílík móðursýki. Ég veit ekki hvað ég var að pæla þegar ég keypti bolinn sem ég er í. Það stendur Fuck this and fuck that á honum og ég skammast mín svo fyrir þetta að ég er í honum á röngunni. Það er aðallega þegar ég stend fyrir framan spegil sem hægt er að sjá í mjög daufu prenti hvað stendur á honum. Ég er núna stödd í spænskutíma í tungumálastöð Háskólans. Eins og þið sjáið er ég mjög samviskusamur nemandi (yeah right). Yo estoy un estudiante terrible! Ég var í munnlegum tíma áðan þar sem við þurftum öll að tjá okkur á spænsku. Af hverju þarf ég endilega að roðna svona mikið! Ég skammast mín ekkert smá. Ég á að halda fyrirlestur (á spænsku!!) í næstu viku! I'm a dead goner.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives