HÆTTUR SIRKUS-LÍFSINS
Ég hef ekki getað sofið eftir að hafa lesið um aumingja sirkus-dverginn sem var að gera trampólín-atriðið sitt en lenti eitthvað rangt á trampólíninu og kastaðist til hliðar, beint upp í opið gin á sirkus-flóðhesti sem var einmitt á þeirri mínútu að geispa. Samkvæmt heimildum var flóðhestinum mjög brugðið að fá þennan stóra aðskotahlut upp í munninn og kyngingar-viðbrögðin ollu því að vesalings litli listamaðurinn var gleyptur lifandi, áhorfendum í sirkustjaldinu til mikillar kátínu þar sem allir héldu að þetta væri partur af atriðinu. Það liðu víst þónokkrar mínútur áður en að fagnaðarlæti áhorfenda breyttust í skelfingaróp er lýðurinn áttaði sig á því að eitthvað hafði farið alvarlega úrskeiðis...What a way to go segi ég nú bara. Að minnsta kosti vona ég að dvergurinn hafi notið sín þessar síðustu sekúndur áður en hann hvarf ofaní maga flóðhestsins. Sniff sniff.